Eru þeir ekki með öllu viti?

"Stöndum þétt saman" eða eitthvað svoleiðis sagði biskupinn um daginn.  Þvílíkt bull hjá manninum.  Á meðan hann var að skrifa ræðuna var hann væntanlega í símanum við lögmanninn.  Skammastu þín kirkja !!!
mbl.is Kirkjan krefur ríkið um milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já hún er ekki öll eins helvítis vitleysan. Stundum held ég að allt sé að verða vitlaust! Og samt tekst kirkjunni að toppa!!

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 11:04

2 identicon

Kirkjan virðir hér ekki gildar og réttlátar leikreglur.

Allar kirkjujarðir eiga að lúta stjórn Ihaldsins sem með sínu alkunna réttlæti deilir þeim meðal sinna manna - auðmanna Islands. Þeir hafa tekið stóra skelli að undanförnu og eiga þessar jarðir skilið.  Það held ég nú !

Klux (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 12:15

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Stórt faðmlag.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.10.2008 kl. 12:23

4 Smámynd: Sævar Einarsson

Er möguleiki á því að þú hafir verið í Húnavallaskóla 1983-1984 María Richter ?

Sævar Einarsson, 16.10.2008 kl. 18:30

5 Smámynd: María Richter

Nei ekki var ég í Húnavallaskóla, en er þó tengd sterkum böndum við Húnavatnssýsluna þar sem mamma mín er úr Miðfirðinum

María Richter, 16.10.2008 kl. 22:33

6 Smámynd: Ólafur Björnsson

Það er ákveðinn misskilningur í gangi varðandi þetta mál, og frétt MBL villandi. Kirkjan er ekki ekki að innheimta eða krefjast neinna greiðslna frá ríkinu. Hér er um þjóðlendumál að ræða og varðar túlkun á gömlum eignaskjölum kirkjunnar, m.a. máldaga Valþjófsstaðar frá 1387. Þetta mál hefur verið lengi í gangi, en þjóðlendulögin eru frá 1998. Hitt er annað að verði fallist á eignarréttarkröfu kirkjunnar, að öllu leyti eða hluta, falla greiðslur vegna vatnsréttinda jarðarinnar til kirkjunnar, sem þinglýsts eiganda jarðarinnar, í samræmi við eignarhlut. Það er Landsvirkjun sem greiðir þær bætur til eiganda jarðarinnar í samræmi við ákvörðun dómstóla.

Ólafur Björnsson, 16.10.2008 kl. 23:29

7 identicon

Kirkjan hefur samt þarfari hlutum að sinna um þessar mundir. Svo á ekkert að vera að borga kirkjunni neitt. Þetta eru ríkisstarfsmenn og eiga bara að haga sér sem slíkir, semsagt spariklæddir blýantanagarar.

sandkassi (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband