15.2.2009 | 21:19
Hvað með Grensásdeildina Ögmundur?
Gott mál Ögmundur að breyta ákvörðun um St.Jósefsspítala, ef það er heilbrigðiskerfinu til hagsbóta.
Hins vegar hefur ekki heyrst neitt um þær breytingar sem eru yfirvofandi á Grensásdeild Landspítalans. Þar er verið að sameina tvær deildir í eina með tilheyrandi uppsögnum á starfsfólki. Ég man ekki betur en ég hafi lesið margoft að ekki komi til uppsagnir í heilbrigðisgeiranum, en þar er sannarlega verið að segja upp starfsfólki og ekki endurnýja tímabundna ráðningarsamninga við aðra. Er það bara málið að mótmæla, safna undirskriftum og þá er ákvörðunum snúið við? Mér finnst að það ætti aldeilis að athuga þessa ráðstöfun. Að loka annarri deild endurhæfingardeildarinnar við Grensás getur vart talist sparnaður. Hvað verður um fólkið sem er þar núna? Ég trúi ekki að þar sé fólk inniliggjandi sem er fullkomlega fært um að vera heima. Ef annarri deildinni verður lokað, hljóta þeir sjúklingar sem á hinni lokuðu deild ættu að vera, vera á öðrum deildum sjúkrahússins, eða sendir heim án þess að vera færir um að sjá um sig sjálfir.
Er þetta það heilbrigðiskerfi sem þú vilt sjá Ögmundur? Hvað um starfsólkið sem er búið að segja upp? Hvað um yfirlýsingar þar að lútandi að skipulagsbreytingar á LSH komi ekki til með að bitna á almennum starfsmönnum? Ég þekki prívat og persónulega starfsmenn þar sem verða atvinnulausir í maí. Af hverju er ekkert talað um GRENSÁS??????
![]() |
Ákvörðuninni verður snúið við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2009 | 14:47
Þarf kannski ekkert að kjósa?
Ég bara spyr. Eru kannski núverandi stjórnarflokkar búnir að semja og skipuleggja samstarf fyrir kosningar?
Ég líka spyr hvað gerist ef núverandi stjórnarflokkar fá ekki meirihluta að loknum kosningum? Halda þá búsáhaldamótmælendurnir ekki bara áfram og linna ekki látum fyrr en stjórn þeim hugnanleg er komin við stjórnvölin? Allt tal um að lýðræðið hafi verið fótum troðið en algjörlega vitlaust. Lýðræðið er nefnilega þannig að á fjögurra ára fresti kjósum við, þjóðin til alþingis. Búsáhaldamótmælendur sögðust alltaf vera þjóðin, en þeir voru ekki þarna á mínum vegum. Ekki frekar á Austurvelli en þegar gengið var um með ofbeldi og skemmdarverkum.
![]() |
Ekki verið samið um framhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2009 | 10:58
Er þetta ekki merkilegt!
Framsókn með 17% fylgi!!!
Var ekki Framsókn í stjórn í 12 ár? Framsókn með alla einkavinavæðinguna. Hver var viðskiptaráðherra þegar allt regluverkið í kringum bankana var samþykkt?
Er nú allt í einu Framsókn orðin bjargvætturinn?
Mikið er fólk fljótt að gleyma. Framsókn er flokkurinn sem síst af öllum ætti að stjórna hérna á landinu okkar.
Þetta finnst mér að minnsta kosti
![]() |
Framsókn með 17% fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.1.2009 | 08:09
Er þetta lýðræði?
Mér hefur heyrst að mótmælendur hafi undanfarnar vikur og mánuði verið að kalla eftir lýðræði. Er það lýðræði að koma sínu fram með ofbeldi? Ég hef alltaf haldið að lýðræðið sem er verndað í stjórnarskránni okkar virki þannig að á 4 ára fresti kjósi fólkið til alþingis og mynduð sé ríkisstjórn til 4 ára.
Þetta fólk á Austurvelli er ekki á mínum vegum þarna, ég kaus í síðustu alþingiskosningum og nýtti mér hinn lýðræðislega rétt minn. Ég þarf ekki að vera sammála um hvernig ríkisstjórn var mynduð enda var það ekki í mínum verkahring að mynda hana. Lýðræðið virkar nefnilega ekki þannig að fólkið sláist við yfirvöld til að ná sínum kröfum fram. ÞETTA ER OFBELDI og ekkert annað. Ég skil ekki í þingmönnum sem voru kosnir af þjóðinni að æpa og góla í þingsal eftir lýðræði. Voru þeir ekki kosnir í lýðræðislegum kosningum? Ef ríkisstjórnin er umboðslaus, eru þessir þingmenn þá ekki jafn umboðslausir? Hver afturkallaði umboð þingmanna og ríkisstjórnar? Ég skil ekki afhverju sumir þingmenn eru með umboð þjóðarinnar og aðrir ekki. Það að einhver hluti fólksins vilji breytingar gerir það ekki að lýðræði.
Ég er ekki með þessum orðum mínum að segja að ég sé sátt við ástandið í landinu. Langt því frá. En ég trúi því að á meðan við, þá er ég að tala um fólkið í landinu, reynum ekki að snúa við blaðinu og fari að beita kröftum okkar til að bæta þjóðfélagið, í stað þess að berja á löggunni, þá gerist ekkert.
Og eigum við að tala um þátt fjölmiðla. Þeir ættu nú bara að skammast sín. Kannski þarf pínu "lýðræði" þar, hvernig væri að safnast saman fyrir utan hús fjölmiðlanna og mótmæla fréttunum? Ég held því fram að á fjölmiðlunum sé bannað að flytja jákvæðar fréttir. Þeir svoleiðis elta uppi allt neikvætt og ömurlegt og dettur ekki í hug að fjalla um jákvæðar fréttir. Í fyrra var talað um olíuverð í hverjum einasta fréttatíma. Í dag er ekki minnst á olíuverð. Og viðskiptafréttirnar. Er einhver venjulegur borgari sem hefur minnsta áhuga á þessari upptalningu í 10 fréttunum? Ef ég vil fylgjast með mörkuðum eða gengi þá stóla ég ekki á fréttirnar til að gefa mér þær upplýsingar.
![]() |
Tveir lögreglumenn slasaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.1.2009 | 23:24
Nýja árið er komið...
og ekki sakna ég þess gamla.
Við hérna í Floridanu höfðum það ákaflega gott um áramótin. Reynar voru þau frekar óhefðbundin. Maturinn var mjög hefðbundinn fyrir utan það að kalkúnabringurnar sem við gæddum okkur á kostuðu slikk og kostnaðurinn við veisluna var ótrúlegur.
Ekki vildum við missa af skaupinu, svo við tróðum okkur öll í sófann, kveiktum á tölvu og horfðum á eitt besta skaup í mörg ár. Tær snilld.
Læt hérna að gamni fylgja með fánann sem kaninn er svo obboð hreykinn af.
Well
ekki var mikið um flugelda, bara eiginlega ekki neitt, kannski bara 5 hérna í nágrenninu.
Svo var nú gaman hjá okkur í gær. Flugfrændi og fjölskylda komu í heimsókn til okkar. Við áttum frábærar stundir, Flugfrænda-stubban fór á kostum, var nú pínu mikið feimin þegar þau komu, en það bráði nú af henni og lék hún við hvurn sinn fingur. Við vorum svo heppin að þau gistu hérna hjá okkur og fóru ekki heim fyrr en eftir hádegi. Ég amk er mjög ánægð með heimsóknina og vona að þau séu það líka....
Í kvöld ætlum við að slá um okkur og skutla okkur út að borða. Við ætlum að skutlast á Applebee's sem er nú bara næstum hérna í bakgarðinum hjá okkur. Fórum í smá sjopping túr í dag og gerðum ljómandi góð kaup, fórum í PetSmart og þar keyptum við nú eitt og annað handa Amiru okkar. Og fékk ekki frúin eina svona líka fína golfkylfu, nú er bara að standa sig...
Eins og þið sjáið þá njótum við okkar ljómandi vel hérna eins og vanalega, en nú er aldeilis farið að styttast í fríinu, við verðum komin heim á klakann áður en við vitum af. Það eru blendnar tilfinningar, hérna erum við auðvitað í fríi, í frábæru veðri og gætum ekki haft það betra í fríi, en svo er fjölskyldan á Íslandinu og vitið það er held ég bara líka hjartað. Nú er ég að verða væmin, svo ég er hætt....
Verið góð hvort við annað
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.12.2008 | 20:59
Skyndibitamenningin könnuð!!!
Ja hérna það fór þó aldrei svo að við færum í skyndibitamenningarkönnunarferð (úbs langt orð). Við vorum fyrir löngu búin að ákveða að fara út á lífið í gærkvöldi, við ætluðum í Old Town að skoða gömlu bílana sem þar keyra hringinn á hverju föstudags og laugardagskvöldi. Svo var rúsinan í pylsuendanum. Við fórum á McDonalds, vöggu skyndibitanna. Allir hlökkuðu til ævintyra kvöldsins, dressuðu sig upp og settust í bílinn fullir eftirvæntingar. Ekki skal fjölyrða um að vonbrigði mín voru töluverð. McDonalds var nákvæmlega jafn lítið spennandi og ég hafði þó lúmskan grun um. Ég veit ekki hvað í ósköpunum ég hélt að hefði gerst síðan ég síðast smakkaði Makkara. Það hafði amk ekki gerst neitt sem bragðbætti borgarann. Förum væntanlega ekki í bráð aftur á Makkann.
Well eftir vonbrigðin með Makkann var stefnan tekin á Old Town
Okkur finnst ekki leiðinlegt að koma þangað. Á laugardagskvöldum er skrúð"keyrsla" gamalla bíla. Í gærkvöldi voru óvenjulega margir bílar á ferðinni, vel komnir á aldur og fólkið sem keyrir í sömu aldursgrúppu. Þarna eru líka alls konar tryllings tæki sem sumir kalla "skemmti" tæki. Ég skil reyndar ekki skemmtunina í því að láta þeyta sér hátt í loft upp og þeytast svo til jarðar á miklum hraða. Í mínum huga er þetta frekar píning, þannig að þetta læt ég algjörlega fram hjá mér fara.
Við tókum nokkrar myndir sem ég læt fylgja hér með:
Þessir voru yndislegir, sungu gamla slagara á götuhorni, hefði getað staðið lengi og hlustað á þá.
Það var engu líkara en barnið stæði þarna hágrátandi. En við nánari skoðun var þetta alls ekki barn hjúkket.
Hér kemur svo ein af gamla með ungunum. Ekki er þetta bíllinn sem við leigjum hérna, enda væri það pínu erfitt að dröslast um borð. en þessi var í Old town og er sá sami og var notaður í einhverri bíómynd hérna um árið. Man ekki hvað hún heitir.
Jæja börnin mín, sólin bíður mín og ég ætla ekki að láta hana bíða...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2008 | 00:00
2. í jólum að verða búinn.
Nú er annar dagur jóla að kvöldi kominn hérna í Floridanu. Við erum loksins búin með jólamatinn. Við virðumst eitthvað hafa ofmetið át fjölskyldunnar, því við keyptum 5 kg svínslærisstykki og ég var meira að segja að leita að stærra stykki í búðinni. Hvílíkt rugl. Mundu svo eftir því að venjulega þá kaupi ég ca 3 kg. Ekki hef ég græna glóru af hverju ég hélt að við myndum sporðrenna 2 kílóum meira í þetta skiptið. En þetta er búið og gamli er núna að grilla ljúffengar kjúklingabringur. Og við ætlum að borða við sundlaugarbakkann. Ekki slæmt.
Við höfum verið dugleg að golfa. Fórum reyndar ekkert í gær en tókum í staðinn daginn í dag snemma og okkur gekk öllum svona ljómandi vel. Ég meira að segja náði takmarkinu sem ég var búin að setja mér. Ég fór á 98 höggum sem er ekkert smá gott fyrir ræfilinn mig. Ég ætla samt að reyna enn betur á morgun.
Á meðan við þ.e. ég, gamli og tengdapilturinn fórum í golf, fóru systurnar á útsölu í Kohl's. Þar var nú ýmislegt góss sótt og allt á þvílíkum prísum að við höfum ekki séð annað eins. Ætli ég skutli mér ekki eftir helgi á útsölu og geri reyfarakaup. Hvur veit.
Úbs, nú kallar gamli í mat. Verið góð við hvert annað.
Bestu kveðjur frá USA inu... :)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2008 | 22:18
Gleðileg jól
Þetta er allt í meira lagi skrítið. Núna er klukkan hjá okkur 17:15 og ennþá er sólin að skína og við gætum hæglega borðað við sundlaugarbarminn. Við erum núna að hafa okkur til fyrir jólahátíðina, sem er fyrir löngu byrjuð heima á Íslandinu. En við erum að gera okkur sæt og fín til að eiga saman jólamáltíðina. Hún er mjög klassísk við, með smá amerískum breytingum, þar sem hráefni sem við erum vön að nota fást ekki hérna megin hafsins. En við erum kát og aðalatriðið er að vera saman, þykja vænt hvert um annað og umvefja þá sem manni þykir vænst um.
En það eru svo margir heima á Íslandi sem okkur þykir líka svo óendanlega vænt um. Hugurinn leitar óhjákvæmilega til þeirra. Best þætti okkur að hafa alla stórfjölskylduna hérna og ekkert minna, en það er nú bara frekja í okkur.
Er að fara að skvera mér í sparikjólinn.
Sendi okkar bestu jólakveðjur til allra sem við þekkjum og allra þeirra sem lesa þennan pistil. Megi jólahátíðin verða okkur öllum gleðileg og góð.
Kveðja frá fjölskyldunni í Florida
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2008 | 22:50
Jólin eru á morgun.
Þá er öll fjölskyldan samankomin í Florida, reyndar er kærasti stubbunar undanskilinn og er hans saknað. Þetta verða undarleg jól svo ekki sé meira sagt. Hér er bongo blíða og ekki baun jólalegt. Við vorum að koma úr mollinu þar sem var alveg brjálað að gera. Ég held að ég hljóti að vera að eldast, því mér fannst örtröðin næstum yfirþyrmandi, en gamla fannst þetta bara allt eins og venjulega. Ég vona að ég nái mér að þessu moll drama og það fljótt. Við erum búin að kaupa í jólamatinn, hann verður sumpart framandi en einnig ákaflega hefðbundinn, sjáum bara til hvernig til tekst.
Svo bíður Trivialið þess að vera tekið fram að venju á jóladagsmorgun, en sú breyting verður á í ár að núna ætlum við að spila við sundlaugarbakkann. Það verður nú skrítið. Ég stefni að því að vinna, það verður nú bara skemmtilegt.
Við gömlu fórum í golf í morgun og ég held bara að mér fari aftur við hvern hring sem ég spila núna. En við ætlum í fyrramálið líka og þá kemur brottflutti kærastinn með okkur. Og þá er eins gott að standa sig og það stendur aldeilis til.
Gleðileg jól til ykkar allra heima á Íslandi og hvar sem þið eruð stödd í veröldinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.12.2008 | 23:19
Stubban komin
Og getiði hvað? Hún lenti í veseni í immigration. Þeir eru alveg eyðilagðir yfir því að við erum ekki flutt hingað og vilja annað hvort fá okkur full time eða að við skilum kortinu. Hún skilaði því kortinu og við ætlum að gera slíkt hið sama þegar við komum heim. Nennum þessu ekki. Ef við ætlum að flytja hingað seinna, þá bara sækjum við um aftur. Þeir hljóta að úthluta okkur kortum aftur eins og skot, nógu eru þeir æstir í að við séum hérna full time.
Annars er auðvitað rjómablíða hérna, hvað annað. Við vorum að koma úr Costco þeirri eðalbúð, komumst reyndar að því þegar við komum heim að við gleymdum ýmsu smálegu, en það er reyndar ekki hægt að kaupa neitt smálegt í Costo, þannig að við skutlum okkur bara út í Publix eftir helstu nauðsynjum.
Núna eru þau brottfluttu í Texas. Voru í Dallas síðustu nótt og eru að nálgast okkur óðfluga. Þau verða hér á þriðjudaginn.
Passið ykkur í kuldanum á klakanum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)