Fyrsta haustbloggið.

Það var flugvélin sem ber eldstöðvarheitið Eyjafjallajökull sem skutlaði okkur yfir hafið.  Þetta var algjört skutl því við vorum aðeins 7 tíma að skottast þetta.  Vorum komin heim í húsá mettíma.  Þar biðu Háhæðarhjónin eftir okkur með veitingar sem hefðu dugað heilli hersveit. 

Búin að fara í golf.  Langar varla að minnast á þau ósköp. Er sumsagt búin að tapa báðum hringjunum, gamli alveg að fara á kostum en anginn ég í tómu tjóni.  En þetta verður betra í dag. 

Eins og áður ætlar þetta ekki að verða neitt letifrí. Nú skal tekið á því.  Við skottuðumst út í búð og keyptum okkur hjól og nú skal hjólað og hjólað og hjólað.........

Frúin nýbúin að kaupa hjól á landinu bláa, þar sem ég reiddi fram 89 þúsund íslenskar krónur á útsölu.  Hér reiddi ég fram ca 12 þúsund íslenskar krónur.  Finnst þetta dálítið mikill munur.

Á alveg eftir að öpdeita stjörnulífið, en sýnist við fyrstu sýn,  vera nóg af fréttum. 

Ætla að skutlast í kaffisopa því termítagæinn er að koma á eftir. 


Bloggfærslur 26. október 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband