Florida hér

Það er bara hvursdagslegt að við höfum það eins og svín í sagi.  Hér flatmagar frúin eins og enginn sé morgundagurinn, hálfútafliggjandi í yndis veðri glampandi sól og pínu golu svo maður soðni ekki alveg. Purrrrrfekkt algjörlega, gamli á kantinum ásamt slettu af hvítu. 

Það er svo mikið að gera í stjörnuheimum að ég næ næstum ekki að fylgjast með.  En hér kemur brot af því besta og haldið ykkur nú. 

Ben og Jennifer eru tekin saman aftur.  Eftir að hafa verið að deita einhverja dela sá hún að hann Ben er sá besti og hann ætlar að hætta / minnka að gambla og auðvitað er hann hættur að lúlla hjá barnfóstrunni.

Hún Leah er búin að skrifa svo krassandi bók um vísindakirkjuna að þar er allt skjálfandi, hún er náttla búin að vera þar í innsta hring síðan fyrir milljón árum.  

Eigum við að tala um angan hana Kim. Hana langar svo að Nori og Georg í höllinni verði bestu vinir, en Kata í höllinni er akkúrat ekki á því,  neibb ekkert svoleiðis bull, Georg verður kóngur en angans Nori verður aldrei drottning. 

Vá himnarnir opnuðust og við gömlu rétt gátum forðað hvítu slettunni frá drukknun ásamt handklæðum og þið sem hafið heimsótt Florida þá vitið þið að það rignir hressilega þegar rignir en við örugg í skjóli fáklædd i ca 30 gráðum og ekkert sérstaklega á leiðinni inn.

 Kommennta svo .

Tjá


Bloggfærslur 6. nóvember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband