Þetta er svo erfitt líf

Það er sko ekki tekið út með sitjandi sælunni að vera í fríi hérna í Ammeríkunni.  Nei o nei.  

Eins og í gær.  Við fórum auðvitað í vinnuna í gærmorgun þar sem frúin ég tapaði big tæm.  

Svo fórum við í bíltúr.  Fundum æðislegan bæ, gamla bæinn í Clermont,  sá var nú sætur og krúttlegur.  Ekki var erfiðið búið því við þurftum að skottast í Lowes og svo í Best Buy.  Þegar við vorum búin þar vorum við líka alveg búin á því.  Við rétt dröttuðumst út að laug og þá þurfti auðvitað aðeins að öpdeita aktivitet hjá stjörnunum.  Maður má ekki slá slöku við þar, enda af nógu að taka.  Það er víst allt í háalofti heima hjá yndinu honum John Travolta,  Kelly er viss um að hann er að kíkja á stráka, já stráka hann John su su sei.  Og ræfillinn hún Kim  kasólétt og fautinn hann Kayne er bara í París, vitiði að hann var ekki einu sinni í landinu þegar krakkinn sparkaði í fyrsta skiptið.  Er nema von að Kim greyið gúffi í sig eins og hún lifandi getur.  Og enn er hún Rihanna að komast uppá milli þeirra eðalhjóna Justins og Jessicu.  Jessica alveg bálill yfir þvi að Justin er að hafa samband við Rihönnu, þetta kann ekki góðri lukku að stýra.  Og vissuði að Kate ætlar heim til mömmu með nýfædda barnið sitt, ekki beint heim í höllina, það er víst allt á suðupunkti yfir þessu í höllinni.  Þið sjáið af þessu að það er bara erfitt að vera í fríi.  Líka steinsofnaði ég á bekknum eftir allt erfiðið og var ekki vanþörf á.

Við vorum svo uppgefin að við gátum ekki fyrir okkar litla líf eldað sjálf í gærkvöldi, svo við skötluðumst út og fengum nokkra indverja til að fleyja stöffi á grill  og skutluðum í andlitið á okkur.

Í dag verður sko breyting á.  Eftir vinnuna þá verður flatmagað restina af deginum og hana nú.

Þarf að drattast á lappir

óver and át 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilegt sumar til ykkar þrælanna, heppin eruð þið að þessu fer að ljúka hjá ykkur. Það er ekki mannlegt hvað lagt er á ykkur heiðurshjónin. En auðvitað eruð þið dugnaðarforkar og takið þessu púli með brosi á vör. Eigið góðan dag, sjálf er ég komin í stuttbuxur, búin að finna fánann og er á leiðinni í skrúfgöngu.

Kærar kveðjur

Milla

Milla (IP-tala skráð) 25.4.2013 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband