30.4.2013 | 14:27
Ja hérna.
Sko í gær, þá vann ég gamla og ég hefði getað jafnað keppnina miklu bara með því að vinna hann í dag.
En það varð sko ekki svoleiðis, því hann fékk nýjan liðsmann í sitt lið. Hver? Það var bara almættið sjálft. Við vöknuðum ca 4:30 í nótt við mikla ljósadýrð. Þá var ég nú bara nokkuð viss um að ég fengi tækifæri til klára dæmið. Svo byrjaði að rigna svo hélt áfram að rigna og svo rigndi alveg heilan helling meir. Og með almættið sér við hlið vann sá gamli keppnina. Hann er nú reyndar alveg vel að sigrinum kominn en mikið djö...... var ég nálægt því.
Túrinn búinn að vera yndislegur eins og venjulega. Ródtrippið æðislegt, golfið æðislegt, félagsskapurinn æðislegur, búðirnar æðislegar, maturinn æðislegur og meira að segja kaupfélagsbeljuhvítvínið æðislegt.
Svo er bara að gíra sig í heimferð. Hér eru akkurat núna "bara" 21 gráða, en ég sé að það er um frostmark heima. Og ég ekki einu sinni með lobbu með mér. En alltaf líka gaman og gott að koma heim. Svo er bara að byrja að hlakka til næst.
Óver and át frá Ammeríkunni.
p.s. Ég held að við fljúgum heim með flugvélinni "sem ber eldstöðvarheitið Askja". Það verður gaman að sjá hvort ég hef rétt fyrir mér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.