Sá 31. er flottur

Hann er yndislegur og sólríkur í dag.  Nú er aldeilis stand á heimilinu.  Ég hef ekki hugmynd um hvað voffan er að spuglera, hún stakk af í útilegu, svo frúin brá sér í dágóðan hjólatúr og spugleraði ýmislegt á leiðinni. 

Ég hef oft velt fyrir mér hvað garðyrkja er skrítin.  Ég er búin að eiga garð í næstum 30 ár, segi og skrifa þrjátíu ár.  Ég hef nú ekki gefið mig út fyrir að vera með hina margrómuðu grænu fingur, hef frekar dröslast í garðvinnu/garðyrkju af skyldurækni.  Ég hef fjárfest í ýmsum plöntum, sem sumar lifa af vistina og vaxa og dafna en aðrar veslast upp og deyja drottni sínum í beðunum mínum.  Í þessi plöntukaup hafa farið töluverðir fjármunir, plöntur eru sko ekki gefnar, ekki aldeilis, nokkrar druslur geta kostað tugi þúsunda og svo leyfa þær sér að hrökkva uppaf.  En þá er komið að kjarna málsins.  Í garðinum mínum vilja nefnilega vaxa ágætis plöntur, sóleyjar, gleym-mér-eyjar og ýmsar aðrar sem ég kann ekki skil á.   Lungann af tímanum sem er varið við "garðyrkju" er eytt í að rífa þessar fínu plöntur upp með rótum og henda.  Þetta eru samt einu plönturnar sem lifa fínu lífi í garðinum ár eftir ár, bara nokkuð fallegar og lífseigar og þá rífum við þær upp og drepum.  Garðyrkjan gengur semsagt út á að drepa gróður ekki rækta þann gróður sem vill lifa, nei hann skal burt og hana nú.  Hvað gerir búðarplönturnar eitthvað betri en sóley?  er þetta ekki bara plöntusnobb?  En ég fylgi með.  Ég er ekki svo sterk á svellinu að ég sé bara hreykin af sóleyjunum mínum sem vaxa svo huggulega meðfram runnunum mínum.  Ekki misskilja mig að ég sé alla daga úti með bossann út í loftið að rífa sóleyjar upp með rótum.  En ég tek góða spretti og tæti og ríf og uppsker oftar en ekki logandi bakverk að launum.  Ætti ég ekki bara að vera hreykin af því að sóleyjarnar vilja eiga heima hjá mér?  Ég er heldur ekki mjög plöntufróð frú.  Þekki margumrædda sóley og fífla og nokkrar fleiri.  Ég varð mér næstum til skammar um daginn.  Í hrauninu við golfvöllinn sá ég þessa ofurfögru fljólubláu plöntu.  Mér fannst hún svo falleg að ég var að hugsa um að koma með smá skóflu og ræna, já ræna einni og setja í garðinn minn.  Þangað til konan sem ég var með fór að tala um akkurat þessa plöntu, hvað hún væri mikill skaðvaldur og hræðilegt væri ef þetta skrímsli kæmist í garðinn manns.  Hjúkket og ég sem var næstum búin að planta kvikyndinu á besta stað.  Stórslysi afstýrt.  

Ég hjólaði til Óla Gríms og Dorrittar í morgun,  var að spá í hvort þau væru með heitt á könnunni en hafði mig ekki í að banka uppá.  En hugsaði með mér hvað við erum heppin hérna á landinu bláa.  Þarna kom ég bara á mínu gamla fjallahjóli og hefði svo sannarlega getað bankað uppá hjá forsetanum.  Enginn girðing, enginn öryggisvörður.  Svona á þetta að vera og ég vona svo sannarlega að ég geti alltaf spuglerað hvort ég eigi að banka uppá.  Þau eru nú orðnir sveitungar mínir og nágrannar alveg eins og þau í næstu götu eða þannig.....

Í morgun var sko hengt út.  Er nokk sjúr á að það er orðið þurrt.

Óver and át 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef akkúrat verið að spuglera í þessu sama og þá sérstaklega með grasið og mosann. Ég hef alltaf heyrt að mosi sé sérstaklega viðkvæmur gróður, það er hann svo sannarlega ekki í blettinum mínum, þar breiðir hann úr sér eins og feit prestsmaddama. Og af hverju vex grasið betur í stéttinni heldur en á blettinum með hinu grasinu? Mér er spurn. Heppin varstu að setja ekki bláa skaðvaldinn þinn á besta stað í garðinum. Ekki gott að sitja uppi með skrímsli.

Bestu kveðjur

Milla

Milla (IP-tala skráð) 4.8.2013 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband