Í stjörnufans

það hefur verið svo margt að gerast hjá stjörnunum síðan seinast. Vissuð þið að hann Bruce Jenner er að spuglera að hann vilji frekar vera kona en kalI ? Og vissuð þið að hann var að bísa naríum frá henni Kim? Frá henni Kim. Halelúja hvað er eiginlega að manninum? Engin furða að hún Kris vilji ekkert með hann hafa lengur. Þau eru víst flutt í sundur, engin furða. Hann á víst fleiri kjóla en hún. Ég held að ég yrði ekki par kát, ef gamli ætti fleiri kjóla en ég.

Annars virðist allt vera við það sama. Soffía Vergara er víst alveg að horfalla anga stýrið. Kærastinn er svo erfiður, alltaf að kíkja á aðrar stelpur og aumingja Soffía algjörlega bit. Aðrar eru alveg að springa Úr spiki. Ég ætla þó ekki að nefna nein nöfn, þið vitið hvað þetta spik er viðkvæmt umræðuefni.

En að mikilvægara málefni. Nefnilega golfinu. Keppnin mikla í fullum gangi. Og viti menn, frúin er í forystu. Ákaflega ánægjuleg tilbreyting og er ég að hugsa um að halda þessu svona. 

 Svo er krúttið hún Suri búin að missa fyrstu tönnina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli þurfi ekki bara að kalla saman öryggisráð sameinuðu þjóðanna? Mér finnst ástandið í slúðurheimum mjög alvarlegt og ég verð bara að segja fyrir mig að oft hefur öryggisráðið verið kallað saman af minna tilefni en því að kærastinn hennar Kim sé að bísa naríunum hennar. Ég segi nú ekki annað. Og svo finnst mér að auðvitað eigi að flagga í heila viku, nú þegar hún Suri er búin að missa tönn. Menn flagga af minna tilefni

Kveðja í sólina

Milla

Milla (IP-tala skráð) 31.10.2013 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband