5.3.2009 | 14:21
Heyr heyr.
Gott hjá Helga Magnússyni.
Sú keppni sem hefur verið á milli fjölmiðlanna að tala um "skelfilegt" ástand hefur ekkert annað í för með sér en fólk fyllist vonleysi og hræðslu. Eins keppni þeirra um að draga fram alls konar sérfræðinga sem allir hafa svo mikið vit á ástandinu er algjörlega ómögulegt. Einnig allar þær rangfærslur sem hafa komið fram í fréttaflutningi eru eingöngu til þess fallnar að draga kraft úr fólki.
Ég aðhyllist frekar skoðun Helga og Þórs Sigfússonar sem hvetja landann til bjartsýni og líta kannski8 á að glasið sé háffullt, en ekki hálftómt.
Núna verðum við að horfa fram á veginn, það gengur ekki að vera alltaf að horfa aftur í tímann.
Við Íslendingar höfum nú verið þekkt fyrir annað en að leggja árar í bát og núna er full þörf á að bretta upp ermarnar og halda áfram.
Bjartsýni nauðsynleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það þarf nú dirfsku til að hvetja menn til þess að "byggja samfélagið upp að nýju á grundvelli þeirra gilda sem reyndust okkur vel í gamla Íslandi".
Á grundvelli þeirra gilda sem reyndust okkur vel í gamla Íslandi.Þetta hefur ekkert með bjartsýni að gera, fremur með veruleikafyrring og kjánskap.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 14:32
Þá spyr ég: hvað vilt þú gera Haukur? eigum við ekki að byggja upp íslenskt samfélag?
Er ekki rétt að það eru 90% mannaflans með vinnu? Það er þessi neikvæða umræða sem er að draga úr okkur þróttinn, okkur þessu þróttmikla fólki.
María Richter, 5.3.2009 kl. 14:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.