30.4.2009 | 20:04
Oink Oink???
Þetta er ekki í lagi.
Í haust þegar ég fór í frí þá hrundu allir bankarnir. Maður má ekki skreppa í burtu í smá tíma þá fer allt í fokk. Ekkert merkilegt gerðist þegar ég leyfði mér að fara af landi brott um jólin.
En núna. Jú takk fyrir ég er að fara á morgun. Hvað er búið að vera í fréttunum endalaust undanfarna daga? Jú svínaflensa oink oink.... Hvað er í gangi? Ég held að ég verði að fara að ferðast í laumi.
En hvað sem allri svínaflensu og stjórnarlausu Íslandi líður þá er ég að fara í frí á morgun. Nákvæmlega kl. 17:25 þá sit ég um borð í einhverri flugvél Icelandair akkurat í flugtaki. Mmmmm ég ætla að gleyma svínaflensu og svei mér þá ef ég ætla ekki að reyna að gleyma líka Jóku og Steingrími um stund. Einn Facebook vinur vinn sagði mér svo snilldarlega í dag, að á meðan þeim tekst ekki að mynda stjórn, þá hækka þau ekki skattana á okkur, okkur fólkið sem vinnum hörðum höndum fyrir laununum okkar. Fólkinu sem hefur hingað til, og væntanlega héðan í frá, haldið uppi velferðarkerfinu okkar hér á Íslandinu litla.
Ætla ekki að vera leiðinleg.
Á laugaradaginn kl. 09:00 á ég pantaðan tíma í golf. MMMM og ég verð vonandi búin að htta flesta góðu vini mína á golfvellinum okkar í yndislega Highlands Reserve.
Góða ferð til mín og félaga.
Fleiri blogg og commentið nú..... koma svo....
Athugasemdir
Ekki kissa svínin, góða ferð bæði tvö, farið vel með ykkur.
Susan Ann Björnsdóttir (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 22:20
Það þarf að setja farbann á þig, þá höfum við hin kannski smá von um lífsgæði.
Marta Gunnarsdóttir, 2.5.2009 kl. 13:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.