Dagur eitt punktur

Ferðin hingað var LÖNG, en ákaflega þægileg.  Eins og venulega var nánast full vél en eitt var öðruvísi en áður.  Það sátu held ég 4 á Saga klass, í fyrra var þar alltaf kjaftfullt.

Við vorum auðvitað dálítið stressuð yfir Immigration gæunum,  þyrftum við enn einu sinni að vera tekin afsíðis útaf græna kortinu okkar.  En við vorum heppin og gæinn bauð okkur bara velkomin heim!! ákaflega ljúft.  Náðum í bílinn, sem svo sem gekk ekki andskotalaust Avis á Íslandi gerði einhverja gloriu og það sá ekki nokkur maður hérna vð við vorum búin að borga bílinn.  Hringi á Mánudaginn og græja það.  Well well flugfrændi og familia voru samferða okkur út og skutluðum við þeim heim í leiðinni.  Eigum eftir að sjá meira af þeim í þessu fríi.

En svo er auðvitað komið að alaðaltriðinu.  Getið hvað??  Jú golfið.  Frúin gerði sér lítið fyrir og fór á 98 höggum  húrra húrra húrra, tralalla lalla la  það eina slæma við þetta er að það er svo erfitt fyrir mig að fylgja þessu eftir.  En ég geri mitt besta.

Það er komin nautasteik í skápinn og bleika stöffið.  Ég er á leiðina út í sólina, held að það sé að nálgast 30 kallinn.  Ekki slæmt. 

Má ekki vera að þessu bloggi.  tjá  og dröslist nú hver sem betur getur að kommenta.....

sólarkveðja til ykkar allra


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ,

var fyrstur að biðja um blogg og því sakar ekki að vera fyrstur að kommenta líka...vildi bara láta vita af því að hundurinn er í spillingarátaki, þeas ég (í dag) og við (á morgun) ætlum að gjörspilla henni og það ferli er þegar hafið. Hugsa að stefni í 40 kg flykki í þrusuformi þegar þið komið til baka (næg hreyfing og nægur matur)...erum ennþá að melta það hvort við eigum að spilla henni líka varðandi snákatilheniginguna hennar og hleypa snáknum út úr búrinu en það á eftir að koma í ljós. Bíður ykkar mikil afspillingarvinna við heimkomu.

 Kv. úr rokinu

Ari (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 20:24

2 Smámynd: María Richter

Ari minn,  ég get rétt ímyndað mér hvernig hún kemur til með að líta út 40 kíló og humpandi drekaræfilinn.... 

Nú er bara spurningin hvort kokkurinn kemur "út úr skápnum"  eða hvað.  Nei nei, hann kúrir núna í sófanum eftir vel heppnaðan eftirmiðdag í sólinni.

Steikin verður væntanleg framreidd af húsbóndanum þegar undirrituð er búin að skola af sér svitanum, bæ ðe vei hanskaklædd á vi hendi,  coooool

teik ker

María Richter, 2.5.2009 kl. 21:32

3 identicon

veit nú ekki hvað skal kommenta.. annað en 

SKÁL..

hafið það gott, við verðum í sambandi.. erum farin út að laug að grilla;)

ólína (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 21:55

4 identicon

Aldeilis góðar fréttir - vona að ykkur líði vel í Florida.

Hjá mér eru gestir sem búa í Paris - komu á föstudag fara í dag (sunnud) - too much wine / too much song.. gamlir kallar þola ekki að borað góðan mat (eða eitthvað sem kemur með honum)

Bullandi vor hérna 21°C í gær og lofar góðu í dag og næstu daga. Emma frænka ætti að vera um það bil að koma í land - Var í St.Helena fyrir helgi.

Njótið blíðunnar og gólfsins

Krissi bró

krissi (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 08:06

5 identicon

Hafið það gott í Florida.  Annað er nú ekki hægt. 

Hérna heima er allt voða gott, 4-7° í gær, rigning, haglél, sólskin og allt annað sem getur prýtt einn góðan vordag.

Bestu kveðjur.

Dísa

Þórdís Richter (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband