4.5.2009 | 00:11
Fórum á ströndina,,,, eða þannig
Dagurinn búinn að vera nokkuð viðburðarríkur á okkar Florida vísu. Við erum ekkert búin að prufa bekkina í dag og slúðrið fór algjörlega fram hjá frúnni.
Við ákváðum frekar að leggja land undir fót og fara út á ströndina Atlantshafs megin. Við ætluðum að fara til Melbourne, ekki þó þá áströlsku. Well náðum í ferðafélagana og lögðum af stað. Á leiðinni datt okkur í hug að droppa við á flóa markaði. Algjörlega frábært, herra ferðafélagi heillaðist algjörlega og keypti sér ýmislegt góss. Við hin vorum penari í innkaupum og undirrituð meira að segja keypti sér ekki neitt. Og áfram héldum við ferðinni á ströndina. Ó mæ god, þetta var svo langt að við nenntum ekki alla leið, snérum við og truttuðumst aftur heim. Þessu strönd verður að bíða betri tíma. Kannski skreppum við út að Mexico flóa, þangað er töluvert styttra, erum þó pínu að spá..... þið vitið Mexico og svín - svínaflensa... nei bara djók.
Golfið gekk fínt 35 punktar og 102 högg. Á morgun ætlum við að heimsækja vini okkar á Providence. Ég vona að Steve verði á vakt. Hann er ævintýralega líkur Walter Matteau alveg yndislegur karl. Og þá er nú eins gott að vera með rétta hugafarið og hitta á helv.... kúlurnar. Vatn, krókódilar og alles eru þarna.
Heyrið við tókum myndavélina með í strandaferðina en sökum strandleysis voru engar myndir teknar. Kannski bætum við út því á morgun.
Tók af mér brunaumbúðirnar í kvöld, bara til að skipta um. Engin sól núna í kvöld, svo ég ætla að leyfa hendinni greyinu aðeins að njóta frelsins. Sárið grær flott en ég er pínu hrædd um að það verði gott ör á eftir.
Komment takk fyrir.....
Love ya all. Sólar kveðja héðan frá yndislega Florida.
Athugasemdir
Hey - allstaðar mynda-efni / t.d flóa-markaður.. Sagan góð og dæmigerð fyrir nöfn í USA - Þarna birtast nöfn frá Astraliu / Frakklandi fyrir nú utan úthöf og innhöf. Frábær staður Florida - Sama hér sól og blíða. Kannske við séum að taka út sólardagana fyrir árið / væri ekki í fyrsta sinn.. neee 32/105 það er betra en ég gæti. Reynt 105 sinnum að hitta kúluna og hitt hana 32 sinnum ? ekki slæmt. Ég hef reynt 105 sinnum og hit aldrei.
Kveðjur
Krissi bro
Krissi (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 07:18
Vil bara koma með statusuppfærslu af "hundinn í 40kg" átakinu okkar Ara. Í gær þegar Ari var að snæða sigurSERRANOinn sinn í Stjörnuheimilinu bauð ég okkur hundinum upp á dýrindis pastarétt...ekki spurning hvorri okkar þótti það betra! Í morgun var svo tölt af stað í nákvæmlega 10 mín göngutúr sem tók sérstaklega á þar sem við þurftum að tipla á milli gæsaskítshrúgana á göngustígnum. Í dag verður svo snákurinn dreginn úr búrinu þar sem við Ari erum komin með nóg af aríum Verdis, í flutningi hundsins.
En njótið frísins meðan þið getið...
Ester (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 10:42
Ég vona að það sé ekki greyið Amira sem á að verða 40 kíló...veit Ester ekki að hún er búin að leggja mikið á sig í megruninni???
Vona að þið hafið það sjúklega gott í sólinni, öfunda ykkur EKKI neitt af því að vera í sól og sumaryl...
Kv.Helga og Egó (sem heldur að hann fái frekar að leika við Amiru ef hún nær 40 kg)
Helga Lína (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 21:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.