Ljúfa lífið í sveitinni

Við gömlu höfum það eins og svín í sagi í sveitinni okkar .  Hitinn alveg fullkominn kannski 25 kall og við alveg að fíla að vera ekki kappklædd . 

Er aðeins búin að skanna stjörnulífið og það er af nógu að taka .  Krúttið hann Brad er víst búinn að jafna sig eftir skassið hana Angelínu og farinn að knúsa hana Kate Hudson .   Angastýrið hún Kim er í mesta basli með Kanye hann er alveg kolkreisí anga kallinn og Kim alveg í rusli . Og haldiði ekki að hann Marc sé að reyna að koma sér í mjúkinn afturhjá J.Lo? gangi honum vel . Já og Keith var þvílíkur dópari að hefði Nicole ekki orðið skotin í honum tja þá væri hann væntanlega dauður og ekkert minn.

Well ætla að skottast í sturtu því við erum á leiðinni í nudd á eftir.

Það var steik í gærkvöldi og örugglega eitthvað gómsætt í kvöld . 

Hvurnig væri svo að kommenta?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband