8.10.2009 | 22:37
Það snarkaði í vatninu....
í sundlauginni þegar ræfillinn ég dróst ofaní, eftir erfiða setu á sólbekknum við lestur á mikilvægum upplýsingum um hvað stjörnurnar eru að aðhafast. Ég get svo svarið það að hann Brad Pitt er algjörlega hættur að nenna að hafa sig til og Angelina er alveg að tjúllast yfir því. Hvað gengur eiginlega að manninum? Og flagarinn hann Justin Timberlake, sagði aumingja Jessicu Biel bara upp með SMS, durturinn og er svo farinn að deita Rhiönnu. Hvað er eiginlega að gerast.
En ég stend mig í stykkinu að fylgjast með.
Hitinn hérna í Florida er mikill þessa dagana. Það eru sett hitamet uppá hvern einasta dag og í dag fór hitinn í heilar 35 gráður og svona á að vera fram yfir helgi. Ég er að vona að dálítið af lýsinu utan á mér bráðni við hitann og tel því ekki eftir mér að flatmaga á bekknum með slúður og bleika stöffið við hendina. Við förum í golf á hverjum morgni, ákváðum fyrstu dagana að vakna bara sjálf og fara af stað í golfið bara svona þegar við nenntum, sem ætti að vera fínt í október, en núna þegar er sumarhiti þá er það bara ekki hægt, þannig að núna erum við aftur komin í rútínuna að vakna áður en hanarnir eru farnir að láta sér detta í hug að opna augun og fara í bólið rétt eftir sólarlag. Þetta bara hentar okkur ágætlega.
Núna er Háhæðarliðið komið til San Fransisco. Svo koma þau hingað næsta miðvikudagskvöld. Eins gott að hitinn verði farinn að lækka því annars er ég hrædd um að herra Háhæð fríki út.....
Well gamli kominn niður fínn og strokinn. Við á leiðinni út að borða ...
Sí ja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2009 | 02:24
SVO mikið að gera...
... að við gömlu erum alveg á fullu. Í morgun þurftum við að bíða eftir termíta gæjanum. Loksins kom hann, hann dró ekki upp bjarta mynd af termítum.... ó nei einn góðan veðurdag gætum við lent í því (nema við keyptum viðbótarþjónustu hjá honum) að termítar væru bara búnir að borða húsið okkar. Við bara komum í sakleysi okkar, opnum hurðina og allt í lagi, nema þegar við snertum handriðið á stigarnum, þá bara puff puff, termítarnir bara búnir að borða handriðið og stuttu seinna stendur bara ekkert eftir... en ekki ef við kaupum viðbótar þjónustu hjá honum....
Á morgun ætlar gamli að mála bílskúrinn á meðan ég háþrýstiþvæ ég allt hátt og lágt að utan. Þetta er auðvitað ekikiert frí, bara stanslaus þrældómur. skjótum samt inní dagskrána golfhring svo sem einum á dag... enda erum við í fríi fólk. En svo ætlum við að leggja af stað og kíkja á poolborð. Þið hljótið að sjá að þetta er endalaust púl, við rétt komum einu slúðri við laugina að öðru hvoru.....
Svo erum við endalaust farin að hlakka til að fá Háhæðarliðið í heimsókn, hlökkum svo til að sýna þeim sveitina okkar og njóta endalaust með þeim.
Sko núna er klukkan að verða hálf ellefiu og við þurfum að skrölta í koju bráðum.....
Mikill dagur á morgun.
Sí ja og kommentið svo... druslurnar ykkar....
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.10.2009 | 02:08
ÁTTA tímar í flugvél.
Góðir farþegar...... flugtíminn til Orlando eru 8 klukkutimar.
Jæks. Oft hef ég nú farið þessa leið en aldrei aldrei aldrei hefur flugtíminn verið heilar 8 klst. Alla malla, þá er nú eins gott að ég keypti eitt slúður og RAJ gaf mér 2 slúður svo ég dey ekki úr leiðindum á leiðinni. En só far þá er allt samkv áætlun, erum komin tæplega 2 tíma í burtu frá Keflavík, eftir 1 og hálfan tíma hristumst við eins og vera ber en núna er rjómalogn og blíða. Erum búin að fá okkur að borða og okkur líður ljómandi og hlökkum til að eiga yndislegan tíma í Bonvillinu okkar.
Hittum Sigga og Theu í Keflavík, þau eru í sömu vélinni. Þau eru á leið til dálítið lengri dvalar en við , koma ekki aftur heim fyrr en rétt fyrir jól, svona gerum við einhvern tíman.
En hvað um það við hlökkum til yndislegs tíma í Davenport eins og venjulega og hlökkum sérestaklega til að sýna Halla og Sigrúnu sveitina okkar og hvur veit nema við skutlum okkur að hitta Mikka í Disney. En í fyrramálið þá ætlum við í golf í sólinni. Eigum pantaðan tíma kl 10 í fyrramálið. Æi vorkenni ykkur greyin mín ísl golfarar en gin hríð hjá okkur, bara sól og blíða.
En hvað um það, eigum bara næstum milljón tíma eftir í flugi, fer þó ljómandi vel um okkur, horfum á bíómyndir og látum tímann líða. Leggjum okkur smá, horfum smá á bíó, lesum smá slúður og bíðum smá eftir að tíminn líður.
Ok er hætt að blogga.ætla að halda áfram að horfa á Shallow Hal og svo einhverja aðra bíómynd.
Sí ja gæs.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.9.2009 | 21:56
Veðrið flott í dag
Þegar við vöknuðum í morgun var nú pínu þungbúið. Þess vegna var við hæfi að fara í bol sem Landsbankinn gaf mér í góðærinu.... En við fórum á Hillview golfvöllinn í morgun. Alveg brjálað að gera hjá þeim. Vorum dálítið mikið lengi að spila hringinn okkar en áttum yndislega skemmtilegan dag. Erum aðeins að kasta mæðinni áður en við skutlum okkur út að borða. Valið stendur á milli Macaroni sem er ítalskur eða Longhorn sem er steikarstaður mmmmm báðir uppfullir af góðum mat.
Á morgun ætlum við að spila golf.... er einhver hissa?
Þetta ætlar að verða eitt frábært frí í viðbót, held bara að við séum ágætir ferðafélagar. Amk þykir mér svo gaman að vera í fríi með gamla mínum.
Og vitiði hvað? Það er karaokee hérna á slísí hótelinu okkar í kvöld. Ég stefni á að mæta. Stelpur það er bara gaman!! veit samt ekki hvort ég slæ í gegn, en það er alltaf möguleiki, kannski kem ég ekkert heim, verð bara uppgötvuð og slæ í gegn.... muhahahaha mikil hætta á því.
Well ekki meira í dag. Netið hérna er á hraða snigilsins og ég þarf í sturtu. Sí ja..
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.9.2009 | 02:14
Wakefield Mass......
Hvað get ég sagt. Er komin enn og aftur til USA. Í þetta skiptið erum við ekki í Florida, aldrei þessu vant. Við erum hérna í 4 daga. Flugum til Boston í gær, föstudaginn 11. september. Verð að segja að 11. september þótti mér ekkert sérstaklega flottur ferðadagur, en hingað komumst við klakklaust. Meira að segja var immigration gæinn ekkert að bögga okkur, flugum í gegn bara eins og ekkert væri. Ég var búin að bóka þetta líka ljómandi hótel, eða það hélt ég að minnsta kosti. Verð þó að segja að ég hef séð það huggulegra. Teppin á ganginum hafa ekki verið þrifin í amk 1000 ár, en herbergið er ljómandi, stórt og hreint. Barinn niðri er frábær, þar er fullt af fólki og gaman.
En þá er komið að aðalatriðinu. Hvað erum við að gera hér? Hu, þarf einhver að spyrja. Við erum að spila golf. Ég búin að safna og safna og þótti því tilvalið að gefa gamla ferðina í afmælisgjöf. Hann á nú ekki þetta stórafmæli nema einu sinni.
Áttum tíma kl. 11 í morgun. Hlökkuðum mikið til.... En bömmerinn þegar við vöknuðum í morgun þá var grenjandi rigning og þá er ég að meina svoleiðis hellidemba að ég hefði ekki verið hissa þótt rignt hefði froskum. Ekki smuga að fara að spila golf. Fórum í staðinn í golfbúð og svoleiðis. Örlítið sljákkaði í rigningunni og við skutluðum okkur í golf. Þar sem völlurinn var rennandi rennandi blautur, mátti aðeins ganga. Svo við þrömmuðum af stað. Með pokana á bakinu. 18 holum seinna skriðu þreyttir golfarar inní bílinn á leið heim. Viltumst pínu á leiðinni svo við skoðuðum miðborg Boston í fyrsta skipti á eigin bíl........ Fundum svo þennan fína Sushi stað hérna í Wakefield algjört æði. Erum nú komin í koju á leið í draumalandið og svo annar golfhringur í fyrramálið og þá á ekki að vera rigning ó nei.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2009 | 14:27
Er þetta sami maðurinn?
Var ég ekki að hlusta á þennan sama Árna Pál í útvarpinu í síðustu viku? Þar fór hann mikinn um hvað fólk hafi farið óvarlega í lántökum, allir, já allir fóru óvarlega í lántökum og þess vegna eru allir í vandræðum.
Ég er búin að semja bréf til mannsins í huganum, átti bara eftir að finna réttan vettvang til að koma því á framfæri. Þvílíkur hroki í einum manni amk þarna í útvarpinu í síðustu viku. Sá maður var sko ekki í nokkrum takti við raunveruleikann. Hann var eiginlega eins og forstjóri Straums sem var svona sambandslaus þegar hann bað um stórbónusana fyrir sig og sína.
Ég var svo yfir mig bit að ráðherra í ríkisstjórn Íslands, léti út úr sér þau orð sem ég heyrði hann segja að hið hálfa hefði verið miklu meira en nóg. Og að þessi maður sé þingmaður í mínu kjördæmi, það fannst mér eiginlega bíta höfuðið af skömminni. Ég get þó verið hreykin að hafa ekki kosið hann og er því blessunarlega laus við að hafa orðið þess valdandi að hann er þingmaður í mínu kjördæmi og ráðherra.
En það er gott að einhver er búinn að taka manninn á teppið. Hann minnir mig nú reyndar á Ragnar nokkurn Reykás, yfirlýsingaglaður með eindemum og snýst í marga hringi í skoðunum sínum.
En þetta finnst mér að minnsta kosti.
![]() |
Ráðherra vill afskrifa skuldir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.8.2009 | 21:04
Flottir hundar.
Flott mynd af flottum sýnendum.
Það vekur athygli mína að þarna á myndinni eru flestir hundarnir yndislegir papillon, eins og hún Amira mín. Þar eru miklir persónuleikar á ferðinni og stórkostlegir félagar.
Hún Amira mín er sérvitur 5 ára stelpa, sem er búin að þjálfa okkur fjölskylduna að sínum þörfum. Hvert okkar hefur sitt sérsvið allt eftir hennar þörfum. Kannski finnst það sumum öfugt, en hún var fljót að skynja hvar okkar áhugasvið lágu og var snögg að laga sig / okkur að sér / okkur.
Það er enginn svikinn af að hafa svona yndislegan félaga á heimilinu.
![]() |
Hvaða hundur er bestur? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2009 | 10:28
Áfram Ísland..... O lei o lei o lei
Þessir strákar eru aldeilis frábærir og flottir fulltrúar okkar. Ekki hefur nú farið mikið um umfjöllun um leikina þeirra í fjölmiðlum, sem því miður er svo oft þegar ekki er um "strákana okkar" þ.e. karlalandsliðið í handbolta. Meira er líka skrifað um fótboltalandslið karla, sem þó virðast bara vinna sér til frægðar að tapa hverjum leiknum á fætur öðrum.
Vona að fjölmiðlamenn láti sér þetta mót að kenningu verða og fylgist betur með yngri landsliðum okkar og jafnvel fari að gjóa augunum í átt til kvenna íþrótta.
Er frekar spennt og lukkuleg með þessa stráka ekki síst þar sem kærasti brottfluttu dótturinnar er í för með þeim, hann er sjúkraþjálfari liðsins og veit ég að þar eru þeir í frábærum höndum.
ÁFRAM ÍSLAND.
p.s. datt bara svona í hug, ætli þeir fái lágflug yfir Reykjavíkurflugvelli þegar þeir koma heim. Þeir eru jú örugglega í öðru sæti á heimsmeistaramóti.... tja bara þetta flaug svona í gegnum hugann...
![]() |
Ísland leikur til úrslita um heimsmeistaratitilinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.7.2009 | 11:43
Ekki erum við íslendingar hissa á þessu.....
Mér sýnist nánast það sama hafa komið fyrir bankakerfið hérna á litla Íslandinu okkar. Hvergi sé ég þó eða heyri í fjölmiðlum að forkólfar íslensku bankanna séu kallaðir "útsmognir svikahrappar". En hvað eru þeir annað?
Tja ég bara spyr.
![]() |
Bankinn sem hvarf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.7.2009 | 09:54
Bankinn búinn að svara...
Fékk svar frá umboðsmanni viðskiptavina NBI hf (Landsbankinn). Það hljóðar svona:
Sæl María
Ég skal skoða þetta mál og láta þig vita.
Því miður get ég ekki sagt neitt um tímamörk á svari mínu.
Kveðja
Gott og vel, umboðsmaðurinn önnum kafinn maður, ekki von, ræfillinn að vera í þessu starfi hjá þessu fyrirtæki. Ekki vildi ég vera í hans sporum. ´
Þangað til ég heyri meira frá Umboðsmanni viðskiptavina bíð ég bara alveg pollróleg og passa mig að fara ekki inn fyrir dyr á nokkru útibúi Landsbankans Æi sorrý NBI hf (Landsbankinn), ég er að segja ykkur, svona heitir þessi banki á bréfsefninu.
Framhald síðar.........
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)