Lofaði ykkur fréttum...

af stjörnunum.  Vitið það virðist vera algjör gúrka hjá þeim, maður fær ekkert að vita um hvort aumingja Brad fær að lúlla hjá Angelinu sinni eða neitt.  Núna eru stjörnurnar helst uppteknar við það í blöðunum að segja öllum hvað þær éta ógeðslega mikið.  Sjúr, ef ég myndi éta eins og þær segjast éta þá get ég lofað ykkur að ég myndi vigta langt á annað hundraðið.  Trúi þeim ekki greyunum. Sorry. 

Við auðvitað höfum það eins og svín í sagi.  Flugfrændi og familian komu í mat til okkar í gærkvöldi.  Gaman að fá þau.  Gáfum þeim skítbillega steik úr Publix sem var skolað niður með fáránlega billegu víni líka úr þeirri eðalbúð.  Litla prinsessan var nú ekki hrifin af matnum sem var á boðstólum en foreldrarnir amk fengu sér bita.  Gaman að fá þau í heimsókn.  Ætlum til þeirra á föstudaginn.  Gaman að sjá hvernig þau búa hérna í útlandinu.  Var að koma úr smá túr í WalMart.  Alltaf ljómandi að koma þangað.  Fékk þó ekki þær nauðsynjar sem ég fór eftir, ætli ég verði ekki að skella mér í Target,, bömmer  Wink

Hér er sól og blíða.  Sendum samúðarkveðjur í næturfrostið heima muhahahahahaha.  Manni verður næstum því kalft bara af tilhugsuninni.  Og við verðum komin heim í þetta allt saman eftir bara viku.  Vona bara að klakinn verði ekki farinn á hausinn.


Við bíðum...

Eftir manninum, sem ætlar að koma að athuga hvort termítar séu nokkuð á leiðinni að borða húsið okkar.  Vona að þær skaðræðis skepnur séu ekki hérna svangar.  Maðurinn kom líka í fyrra, þegar gamli lá úti á bletti, nei hann var ekki í sólbaði, heldur þegar hann ætlaði aðeins að hugga hérna í kring hjá okkur, fékk hann ekki líka þetta fína þursabit og lá eins og slitti þegar termítamaðurinn kom.  Nú erum við spennt að sjá hvort sami stóri svarti maðurinn komi.

Get nú ekki orða bundist yfir Glitni og öllu því sukkinu.  Sko fyrir hvað fékk bankastjórinn greiddar 300 millur þegar hann byrjaði í jobbinu?  Hann virðist hafa haft fullt af "termítum" í vinnu amk er búið að borða upp allan aurinn að því er virðist.  Og svo heldur hann vinnunni.  En er hann ekki kominn í vinnu hjá mér og okkur öllum hinum.  Ég vil reka drenginn og hann ætti auðvitað að skila milljónunum 300 eins og skot og ekki gleyma að rífa starfslokasamninginn, hann fær ekki krónu að skilnaði.  Ef ég fengi einhverju ráðið þá stæði greyið útí á stétt með skófar á rassinum, afsakið orðbragðið. DevilAngry

Well nenni ekki að tuða lengur yfir verðbréfaguttunum.  Þegar termítamaðurinn er farinn þá er ég farin í golf, ætlum svo að kíkja í WalMart eða Lowes, þurfum að kaupa nokkra smáhluti til heimilisins.  Nú hver veit,  kannski kemst ég ekki heim.... hver veit...

Andrés flugfrændi og familía koma vonandi í mat til okkar annað kvöld.  Það verður nú gaman, gefum þeim nautasteik og skítbillegt rauðvín...  Tounge


Golffélagi dauðans

Úff, tókum fyrsta hringinn í gær.  Hann Andy var golffélaginn okkar.  Og ég get sagt ykkur að á 3ju holu langaði mig að kirkja helvítið ......Devil.  Hann var svo FLINKUR, að hann þurfti alltaf að vera að segja mér til.....  Á elleftu fannst mér ég ná mér vel niður á fíflinu.  Fékk leiðbeiningu dagsins og svaraði mannkertinu á góðri íslensku "farðu í rassgat"  svo brosti ég mínu blíðasta.  Vinir okkar á vellinum voru miður sín yfir að senda hann með okkur.  Allt gekk miklu betra í dag, enda fékk ég svo "fínar" leiðbeiningar í gær....

Annars höfum við það eins og svín í sagi, Florida tók á móti okkur með blíðu eins og vanalega.  Við erum búin að fara í Costco og kaupa til heimilisins, allt það sem okkur vantar og miklu meira en það.  Vinir okkar á vellinum knúsuðu okkur og meira að segja passport control maðurinn, bauð okkur velkomin heim.  Er bara búin að kaupa mér eitt slúðurblað þannig að ég er rétt að komast inní málin, læt ykkur fylgjast með stjörnunum eftir því sem mér áskotnast vitneskja.  Þó í blaðinu mínu er verið að spegulera í því hvort Angelina og Brad séu skilin.  Ég veit ekki, hvað haldið þið?  Læt ykkur vita um framvindu mála.

Er að drösla mér í sturtu, svo er það ákvörðun dagsins, eigum við að grilla dýrindis nautasteik eða vera löt og fara út að borða?  veit ekki ennþá...

 


Sól sól skín á mig...... á morgun

Jú hú hú hú, dagurinn sem ég er búin að bíða eftir er kominn.  Við gömlu erum að fljúga af stað í dag.  Eftir sitja stubban mín og voffan, sem eiga að gæta búsins.  Get alveg lofað að ég sakna þess ekki að fara úr helv.......   suddanum  Crying, reyni að vera jákvæð og eins og fíflið hún Pollýanna hefði kannski sagt, þá getum við verið glöð að við verðum varla vatnslaus í náinni framtíð, en come on, það má nú eitthvað á milli vera.

Taskan bíður prúð og smávaxin allt orðið reddý, ætla bara að skella mér heim í hádeginu, skipta um föt og skvera okkur út á völl.  Svo eigum við pantaðan golftíma kl. 9:16 í fyrramálið.  Við verðum örugglega ekki að spila golf í sama suddanum og vinir okkar sem ætla að taka þátt í bændaglímunni (golfmót) á Oddi, brrrrrrrr mér verður bara kalt að hugsa til þeirra.  Nei ég ætla að spila eins og engill og hugsa fallega til þeirra og senda þeim hlýja strauma á morgun muhahahahahaDevil


USA here I come!!

Nú er alveg að koma að þessu.  Við gömlu fljúgum af stað á morgun hvorki meira né minna.  Það virðist óratími síðan voru margir margir klukktutímar þangað til og svo er þetta bara komið.  Allt að verða klárt, nokkrar tuskur komnar ofan í örlitla tösku, ekki örvænta það má alltaf kaupa tösku ef mann skyldi nú vanta eitthvað smáræði í útlandinu.

Er farin að hlakka SVO mikið til.  Ég hlakka svo til að komast í góða veðrið.  Talaði við hann Greg í gær og hann sagði veðrið "fabúlus" hvorki meira né minna.  Kem ekki til með að sakna rigningarinnar baun og þið skuluð ekki láta ykkur dreyma um að ég biðji um rigningu í þetta skiptið nei ó nei, það gerist bara einu sinni á öld sirka bát.  Svo eru það aftur fréttirnar, ég hlakka svo til að losna við þær og vona að fréttamennirnir okkar verði búnir að bryðja tonn af prosak þegar ég kem heim aftur og verði farnir að líta á "glasið hálf fullt" í stað þess að sjá það alltaf "hálf tómt".

Börnin góð, verið dugleg að skoða bloggið mitt, ég ætla að vera svo uppfull af andagift að hið hálfa væri miklu meira en nóg.  Vona að skerið rigni ekki í kaf...Tounge


Megrun hvað?

Við gömlu fengum okkur gervihnattadisk fyrir síðustu jól.  Síðan þá hef ég horft á ógrynni þátta um holdafar fólks, bæði um þá sem eru að springa úr spiki og líka um þá sem eru um það bil að horfalla. 

Einn slikan horfði ég á í gærkvöldi "skinny celebrety horror" eða eitthvað slíkt.  Get nú bara ekki orða bundist.  Er einhver með þokkalegu viti svona galin að taka þátt í þessu?  Jú frægar leikkonur út í heimi taka sér tak sérstaklega fyrir "award season" þ.e. þegar Oscarinn er afhentur, Emmy verlaunin o.s.frv.  þá fara þær í stranga megrun, gjarnan bara í 2 viku guði sé lof.    Upp voru taldir 5 vinsælustu megrunarkúrarnir.  Ég get ómögulega munað þá aumingja sem lentu í 4 og 5 sæti en svo komu:

3. sæti, Water cress súpa, þið munið fræin sem krakkarnir komu með svo hreyknir heim úr leikskólanum í blautri bómull, semsagt ein skál af slíkri súpu á dag, verði ykkur að góðu.

2. sæti og haldið ykkur núna:  bómullarhnoðrar, bleyttir í appelsínusafa.  Ha, hafið þið heyrt annað eins bómullarhnoðrar.  Þarna fór ég, áhugamanneskja um starfsemi líkamans að hugsa, hvurnig í veröldinni fara bómullarhnoðrar í gegn??  hmhmhm svar óskast.

1. sæti  Ekki borðað neitt.....  þið munið það voru 2 vikur.

Ó mæ god, hvað er að okkur.  Draumastærðin er auðvitað "size zero" þá eru gallabuxurnar 22" í mittið eða 55 cm.  hvað er langt síðan einhver ykkar þarna úti voru 55 cm í mittið. Ég hugsa að ég hafi verið kannski 12 og ég var horaður krakki.

Ég man nú hérna fyrir ekki svo mörgum árum að ég tók mér tak fyrir keppni að grenna mig í vissa þyngd.  Þá var allt stranglega reiknað út, það varð að vera nóg af kaloríum til að missa ekki kraft og vit, rétt magn af öllum næringarefnum svo líkaminn bara snérist ekki uppá móti öllu saman.   Við vitum að líkaminn þarf visst magn af hitaeiningum bara til að geta viðhaldið sjálfum sér.  Við erum svo auðvitað búin að skrumskæla þetta allt með allt og mörgum kaloríum í flestum tilfellum.  En svo eru hinir sem fara í öfuga átt.  Svelta líkamann.  Ég hélt að það væri alveg nóg af hungri í heiminum.  Að fullfrískt fólk stundi svona vitleysu er algjörlega fyrir ofan jú eða neðan minn skilning.

Þetta finnst mér að minnsta kosti. 

Mikið rosalega þætti mér gaman ef einhver skrifaði athugasemd.....


Stöð 2 hringdi í mig í gærkvöldi.

Ekki að það sé sérstaklega merkilegt að Stöð 2 sé að leita nýrra áskrifenda en þá var símtalið sem ég fékk í gærkvöldi frekar skondið.  Tounge

Síminn hringdi semsagt heima hjá mér í gærkvöldi uppúr kl. 9.  Gamli svaraði og þar sem var spurt eftir mér rétti hann mér símann.  "Halló" segi ég.  Þá er sagt hinum megin á línunni HÆ, þarna fóru kvarnirnar í mér á flug, einhver sem heilsar mér með "hæ", hlýtur að vera einhver sem ég þekki.  Sem betur fer hélt stúlkan áfram eftir að ég hafði reynt að vinna mér tíma og svarað hæinu með hæ líka svona til að vera með.  Semsagt eftir Hæ inu kom:  "Ég heiti Rósa og er að hringja frá Stöð 2.  Ætlaði að athuga hvort þú vildir vera með Stöð 2 í október?".  Þar sem ég hafði ekki hugsað mér Stöð 2 í október sagði ég henni bara það.  Rósa sagði OK og kvaddi.  Eftir sat ég frekar undrandi.  Þetta var skrítnasta sölusímtal sem ég hef á ævi minni tekið þátt í.  Rósa gerði mér ekkert tilboð, ég hef ekki hugmynd um hvort "Stöð 2 í október" væri frí eða ég þyrfti að borga milljón fyrir "Stöð 2 í október".  Er ekki alveg viss um að Rósa vinkona mín færi Stöð 2 marga áskrifendur.  En Rósu til hróss, þá var hún kurteis og glaðleg. Smile

Ég veit að það eru margir að velta því fyrir sér þarna úti hvað eru núna margir klukkutímar þangað til ég flýg af stað.  Það eru 174LoL


Lenti undir kutanum!!

Fór til doksa í gær.  Blettræfill er búinn að gera sig heimakominn á hægri handlegg í nokkra mánuði.  Þar sem hann vildi ekki í burtu þrátt fyrir meðferð með sterakremi, fór ég stundvíslega aftur á fund húð læknisins þar sem hún vildi taka sýni úr kvikindinu.  Hún gerði þó gott betur og skar blettinn algjörlega í burtu.  Skarta ég nú þessum líka fína plástri.  Blettskrattinn á burt og kemur vonandi aldrei aftur. 

Af ferðaundirbúning er það að frétta að núna eru aðeins 218 klst í brottför.  Vá hvað tíminn líður.  Þó ég hlakki mikið til að fara í sólina og fríið, þá hlakka ég eiginlega meira til í að fara í fréttaleysi.  Ég er að verða svo döpur að hlusta á fréttirnar dag eftir dag og ekkert nema bölsýni...  Fannst þó fréttin um forystusauðinn yndisleg, ekkert neikvætt þar á ferðinni.  Elsku fréttamennirnir okkar ættu að temja sér að færa okkur örlítið bjartari sýn.  T.d. las ég um daginn að það væru 20% líkur á heimskreppu.  Hefði ekki mátt snúa þessu við og segja að það væru 80% líkur á að EKKI yrði heimskreppa.   Ég bara spyr?


271......

tímar þangað til við gömlu fljúgum af stað.  Það er orðið svo stutt að ekki tekur því að telja niður í vikum né dögum, nú eru það klukkutímarnir sem gilda.  Í þetta skiptið verður stubban heima, vonandi á kafi í skólabókunum.Smile

Ég get varla á mér heilli tekið, sé þó að þetta verður töluvert erfitt.  Golfið tekur nú tíma, svo verður nú mikið að gera að ná sér í allar nýjustu upplýsingarnar um stjörnurnar og lifnaðarhætti þeirra.  Þið sjáið að þetta verður varla nokkur afslöppun, getum þó vonandi "skvísað" inn nokkrum stundum við laugina.


Nú er það í næstu viku....

og ekkert minna.  Við gömlu erum að fljúga í frí í næstu viku.  Nú má fara að hlakka til LoL.  Hvað ætlum við að gera í fríinu?  Hugs hugs hugs....  jú við ætlum að golfa, golfa og golfa.  Ætli við slökum ekki líka á við sundlaugina, röðum í okkur góðum mat, sem við skolum niður með ágætis rauðvínum.  Mmmmmm hvað er hægt að hugsa sér það huggulegra.  Og kannski bregður frúin sér jafnvel í eina eða tvær búðir.  Það er nefnilega svoleiðis að þótt dollarinn sé í hæstu hæðum, þá er verðmunurinn alveg jafn mikill.  Vinkona mín var að koma frá USA með samanburðinn á hreinu.  Hún keypti sér maskara á $12, sami maskari kostar á Íslandinu í dag andvirði $25.  Segið svo að ekki borgi sig að skreppa westur að sjoppa. Wink  Og svo fær maður sólina og hlýjuna í bónus.

Má eiginlega ekki vera að þessu, þarf að fara að pakka, ég er að fara í NÆSTU VIKU 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband