21.5.2018 | 19:34
Þetta er orðið ágætt.
Ég meina rigningin. Við erum bara búin að vera í örfáa daga, en það er búið að rigna meira en góðu hófi gegnir, núna er ein hellidemban að ganga yfir. Ég sit samt úti í kannskannski 25 stigum, en laugin er þarna alveg ónotuð og það lítur ekki vel út fyrir laugarnotkun áður en við förum heim á morgun.
Það er mikið búið að græja og gera, flytja allt dótið okkar í nýja húsið og útrétta ýmislegt. Við erum eiginlega dálítið þreytt og myndum alveg þiggja nokkra daga í frí, þ.e. ef hætti að rigna. En við þurfum heim og fljúgum í þetta skiptið í gegnum Boston. LangurLangur dagur framundan.
Nýja húsið er æðislegt , eiginlega dálítið fyndið að hafa bara valið dótið inn í það eftir ráðgjöf og svo bara kviss bang og allt tilbúið, frekar þægilegt.
Athugasemdir
Er komin sama skíta veðrið þar og hér heima, alla veganna rigningin, sem ekki getur hætt. Reyndar er búið að vera fínt í dag þrátt fyrir viðvaranir um annað.
Til hamingju með húsið það litur æðislega út.
Bestu kveðjur
Dísa
Þórdís Richter (IP-tala skráð) 21.5.2018 kl. 20:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.