Áfram Bretar!!!

Er þetta ekki yndislegt?  Bretar þessi líka fína vinaþjóð okkar.  Ég er nú samt glöð að þeir ætla að koma og verja okkur í desember!!  Hjúkket, mér líður miklu betur að vita af því.  Þeir ætla líka að halda verndarheldi yfir okkur og sýna okkur einstakt vinarþel hjá IMF. 

Nei í alvöru.  Er ekki komið nóg af Bretum?  Ég hef ekki hugsað mér að mótmæla neinu opinberlega, ég ætla ekki að tronta á Austurvöll á laugardögum, en ef einhver með viti skipuleggur mótmæli vegna Breta dátanna, sem ætla svo vel að vernda okkur í desember, þá kem ég.  Hringið bara í mig og ég skal vera með í skipulagningu.  Ég hef ekki baun við Breta að gera.  Ég vil ekki Breta.  Eins og ég hef áður sagt, ef þetta eru vinir, þá vil ég ekki eiga vini...

 


mbl.is Uggandi um afgreiðslu umsóknar hjá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband