8.11.2008 | 16:53
Stórkostlegt :(
Þetta var akkurat sem þurfti! Er ekki allt í lagi með fólk. Að mótmæla er auðvitað hverjum sem er frjálst en ég er ekki sammála þessum aðgerðum. Og draga fána Bonus að húni alþingishússins. Það er augsýnilegt að þar hefur einhver, sem hefur ekki hugmynd um neitt, verið að verki. Að minnsta kosti gerir sá hinn sami sér ekki grein fyrir að þeir Bonus menn lágu ekki á liði sínu að koma okkur í þennan vanda sem við erum í núna. Og til að bíta höfuðið af skömminni fyrir þá félaga, þá situr góðvinur þeirra Tryggvi Jónsson í "ráðgjafa" stól í Landsbankanum og velur hvaða fyrirtæki fá að lifa og hver ekki. Hm hm hm, gæti þetta fyrirtæki verið gott fyrir Haga að yfirtaka eftir gjaldþrot? það virðist vera hans vinna þessa dagana.
Nei ég held að mótmælendur ættu að beita kröftum sínum frekar í að kynna sér málin áður en þeir haga sér svona fíflalega.
Þetta finnst mér að minnsta kosti
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ.
![]() |
Geir Jón: Lítið má út af bregða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
þvílíkur skríll. þetta lið fer sko ekki fyrir skoðunum almennings
sandkassi (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 17:00
Veistu að ég held að ég hafi ekki misskilið baun. Fólk er ótrúlega saklaust varðandi þá Bonus feðga. Lítur á þá sem einhverja hvítþvegna engla, sem hafa bjargað okkur í gegnum árin.
María Richter, 8.11.2008 kl. 17:19
mér þykir bara að þeir sem skipuleggja þessi mótmæli þurfi að búa sig undir að hafa stjórn á þeim.
sandkassi (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 18:50
Við sem vorum að mótmæla í dag vorum svo mörg að það var óhjákvæmilegt að einhverjir vildu mótmæli "öðru vísi". Gleymum því ekki að VIÐ erum svo reið, að við grípum sum til ráða sem hugnast ekki öllum. En við stefnum öll að sama marki, BURT MEÐ SPILLINGUNA, BURT MEÐ SJÁLFTÖKULIÐIÐ sem nú hefur komið okkur á kaldan klakann.
Milla systir (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 00:20
Ég skildi gjörninginn þannig að sá sem þetta gerði væri að benda á að auðmennirnir hefðu þingið í vasanum. Ég tel að það sé mikið til í því.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.11.2008 kl. 02:55
ah svo menn eru ekki ábyrgir gerða sinna ble-si? Þetta hljómar eins og þú haldir að þetta sé bíómynd, og þú ert nýbúinn að fá hlutverk.
Þú græðir ekkert á að kalla mig hvolp, færðu rök fyrir máli þínu kettlingur-:)
Menn sem geta ekki stjórnað þeim samkomum sem þeir boða eiga að endurskoða leiðtogahæfni sína.
sandkassi (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 03:11
Held nú eins og Rakel að þessi gjörningur hafi átt að tákna það vald sem þessir menn hafa haft í íslensku samfélagi um árabil og engin hefur getað skilið, reyndar eru enn ótrúlega margir sem mæla þeim bót og það skilur enginn heldur. Allavega er ÉG HÆTTUR AÐ VERSLA Í BÓNUS og öðrum sjoppum þessara manna
Gylfi Björgvinsson, 9.11.2008 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.