Himnarnir opnuðust og ég fór í mollið

Í dag gerðist það.  Það hellirigndi.  Og þá notuðum við tækifærið ég og frú ferðafélagi.  Vð fórum í mollið!!!  rétt eftir að við lögðum af stað byrjaði að rigna og viðeigandi þrumur og eldingar fylgdu með.  Við komumst þokkalega þurrar í mollið og þá byrjaði veislan....  Við gerðum þvílíkt góð kaup.  Kjóllinn sem ég tímdi ekki að kaupa um jólinn, sem kostað rúmlega $22 kostaði núna $10,  Well ýmislegt fallegt var sótt

Var búin að skrifa ótrúlega flott blogg, en ég hef ekki græna glóru hvernig mér tókst að láta það hverfa.  Von að þetta hangi lengur.

Get svo svarið að ég sofnaði áður en ég kláraði þetta blogg, svo erfitt er að fara í mollið og svona...

Það rigndi í rúma 4 klst og ekki veitti af, hér hefur ekki rignt neitt af viti síðan í apríl.  Eitthvað öðruvísi en heima á Fróni...   Og það á að rigna meira í dag.  Og rigningin er heit.  En hún á eitt sameiginlegt með rigningunni heima:  hún er blaut.

Nú sofnaði ég ekki.  Þarf að drösla mér á lappir og getið hvað ég er að fara að gera??? 

Jú er að fara að spila golf.  Fengum Celebration á $35  sem er venjulega rúmlga $100 völlur, en við förum sko ekki að kaupa okkur inná einhverja svoleiðis okurvelli.  En $35 er flott.  Wink


Flugfjölskyldan kom í gær.

Og þá var kátt í kotinu.  Litla flugfrænkan er heldur betur búin að hrista af sér feimnina og lék við hvern sinn fingur.  Við átum dýrindis steik og áttum yndislegt kvöld.  Það var fjölmenni því ferðafélagarnir voru líka í heimsókn.

Í morgun fór svo flugfrændi með okkur í golf.  Það var verulega heitt og rakt en eins og vanalega var gaman í golfinu.  Mér gekk bara alveg þokkalega.  Ég held að ég sé aftur að ná einhverjum tökum á þessu.

Ætluðum að horfa á Jóhönnu Guðrúnu í Eurovision en skv ruv.is geta bara islenskar tölvur horft....:(  hvaða bull er það eiginlega.  Ég finn hvergi á Eurovision síðunni neitt um hvar við getum horft.  Ef einhver veit þá endilega sendið mér slóðina.  Það verður vel þegið.

Ég og ferðafélagafrúin vorum jafnvel að hugsa um að skutla okkur smá í mollið á eftir.   Veit samt ekki hvað ég ætti eiginlega að kaupa því eins og vanalega vantar mig ekki neitt.  En við sjáum bara til.

 


Til hamingju mömmur

Allar mömmur sem lesið þetta, til hamingju með daginn.  Hérna í Ameríkunni er þessi dagur mikill dagur, mömmur fá afslátt á veitingastöðum, blómvendir eru á spes verði, sérstakar mæðradags tertur í búðinni og allir óska öllum góðs mæðradags.

Við tókum forskot á mæðradaginn í gærkvöldi og fórum út að borða.  Jú við fórum á Olive Garden.  Þar var algjörlega stappað og töluverð bið.  Við létum það ekki á okkur fá og áður en varði þá var borðið okkar tilbúið og við að velja af matseðlinum.  Vitið það var ekki auðvelt þetta var allt svo girnilegt.  Ég valdi mér sjávarrétta pasta.  Þegar maturinn kom var það eins og venjulega allt of mikill matur.  Ég tók meðvitaða ákvöðrun.....  ég einbeitti mér að sjávarréttunum og lét pastað að mestu eiga sig.  Góð ákvörðun hjá mér.  Maturinn æðislegur.  Þar sem við vorum komin út á lífið héldum við áfram og skelltum okkur í Downtown Disney  okkur þykir aldrei slæmt að koma þangað.  Þegar við drösluðumst í koju var komið miðnætti og við áttum að vera mætt í golfvinnuna kl 8 í morgun.  Í gær var frúin að drepast í bakinu á fyrstu holunum.  Í morgun var leikið á bakið, hahaha  við fórum í smá morgungöngu fyrir hringinn og gerði það gæfumunin, frúin orðin verkjalaus þegar var komið í vinnuna....

Erum núna aðeins að kíkja á sjónvarpið að horfa á Players mótið.  Það var SVO gaman að vera þar í fyrra, vildi að við hefðum skutlast þangað líka þetta árið.  En núna erum við dálítið mikið lituð af ömögulegu gengi að við látum það bíða.

Haldiði ekki bara að gamli sé uppi að panta tíma á obboð spennandi golfvelli.  Deer Island.  Þangað ætlum við á fimmtudaginn.  Veit ekki alveg hvort ég hlakka til....  en mig langar.


Ofur blíða

Í dag eru 33 gráður hérna fyrir utan.  Það er eiginlega of heitt til að vera mikið úti við.  Er samt búin að gera mitt og eyddi smástund á bekknum rétt áðan.  Þetta er óvanalega heitt á miðað við árstíma, en ég kvarta sko ekki, ekki væri betra að vera í suddanum heima. 

Svei mér þá ef sólin hefur ekki þurrkað upp allt mitt ímyndunarafl, ég er gjörsamlega laus við að vita um hvað ég á að blogga. Svo ég hætti kannski bara.

Annars ætlum við gömlu að skutla okkur í Posner Park á eftir, okkar vantar ýmislegt smálegt svona rekstrarvörur sem kosta hönd og fót heima á Íslandinu litla.  Erum búin að fara í golf, að sjálfsögðu og á eftir fengum við okkur salat á Applebee's.  Semsagt bara huggulegt einn daginn í viðbót hjá okkur.  Það er eiginlega ótrúlegt að við séum hálfnuð með fríið okkar núna í þetta skiptið.  Þessi yndislegi tími líður allt of fljótt, væri til í að vera hérna miklu miklu lengur, en ég verð að fara heim.


Gærdagurinn var svo ´bissy...

að ég hafði engan tíma til að blogga.

Fyrst var auðvitað vinna númer 1 þ.e. golfhringur.  Síðan brunuðum við heim og fengumokkur smá ét.  Síðan tók við vinna númer 2 sólbaðslega með tilheyrandi álagi við slúðurlestur.  Þegar við vorum nánast uppgefin fórum við í Lowes að kaupa smáveigis til heimilisins, nýja ruslatunnu og gardínur fyrir dyrnar út að laug.  Þegar heim var komið tók frúin að sér að skipta út gardínunum.  Boj o boj  þá höfðu gæjarnir í Lowes ekki stytt þær nóg.  Mín út í bíl og brunaði af stað til að fá þetta lagfært.  Þetta hefði tekið 20 mín tops nema fyrir það að þarna voru karl og kerling að láta sníða fyrir sig heilan haug af rimlagardínum og kerlingin var sko ekki á því að leyfa mér að fara á milli,  hún var sko að drífa sig heim að horfa á Survivor helv.... hrukkudýrið.

Ekki nokkur furða að við höfum far úrvinda úr þreytu í bólið í gærkvöldi


Retail meðferð, klikkar aldrei.

Fórum í golf í morgun,,, big surprise.  Eftir að hafa slafrað í okkur dýrindis kínamat ákváðu frúrnar að skutla sér í smá verslun.  Stefnan var tekin á Prime Outlet.  Þangað hafði ég aldrei komið, enda nýbúið að endurbyggja það allt saman.  Well við vorum ekkert sérstaklega hrifnar.  Allt of stórt.  Við kunnum ljómandi vel á Outlettið okkar og langar amk ekki mikið í þetta risa outlet aftur.  En eitthvHef að var hægt að finna sem okkur bráðvantaði.  Eitt par af skóm rataði í poka ásamt ýmsu fleira góssi.  Þegar við komum heim beið okkar dýrindis kvöldverður, sjávarrétta pasta ala Jón og Haffi.  Eftir að ferðafélagarnir fóru til síns heima tók ekki verra við.  Gamli nefnilega keypti sér gítar í dag.  Og ég naut gítarspils á meðan ég brásaði á netinu.  Það þykir mér nú ekki leiðinlegt.

Á morgun er planið einfalt:  golf...  hvað tekur svo við veit nú enginn.  Kannski flatmögum við bara í sólinni en það er sko nóg af henni.  Kannski hlaupum við maraþon, nei efast nú stórlega um það.  En hvað sem við gerum, þá verður það bara ljúft.

Hef fyrir satt að flugfrænka litla hafi bara átt góða stund með okkur gömlu hérna í Bonville Drive.  Við amk skemmtum okkur ljómandi vel að hafa hana. 

 

 


Flugfrænka er að koma!!!

Það er komið að því.  Litla flugfrænkan er á leiðinni til okkar í pössun.  Ykkur þykir kannski skrítið hvað ég mala mikið um þennan viðburð, en þegar við gömlu fórum að hugsa okkur um, þá höfum við eiginlega ekki passað lítið barn, fyrir utan kannski einn eða tvo eftirmiðdaga, jú ekki passað í nálægt 20 ár....   Hvað gerir maður fyrir 3ja ára stúlkukorn?Flugfrænka á Applebee's

 Jæja jæja jæja.  Flugfrænka litla er hér og búin að vera núna í nálægt 3 tíma.  Hér hefur ekki verið dauf mínúta síðan.  Við skutluðum okkur á Applebee's að borða og héldum að þar væri Mexico party.  Það var nú frekar aumt svo við drifum okkur heim, þar sem flugfrænka reif sig úr öllum fötunum og vildi fara í laugina.  Og auðvitað var það í aldeilis góðu lagi, en þar sem við erum ábyrgir passendur þá sendi ég Jón út í laugina með barninu.  Þar skemmtu þau sér hið besta í dágóða stund.  Síðan var stiginn dans í stofunni, 4 fullorðnir og eitt barn.  Mér sýnist flugfrænka litla skemmta sér bara ágætlega og við gömlu skemmtum okkur stórvel.


Golf hvað???

Hvílíkt ömurlegur leikur, arg.....  Frúin spilaði eins og flón í morgun en ég ætla sko strax aftur í fyrramálið!!!  Hvernig er mögulega hægt að spila eins og engill í gær og eins og algjör byrjandi í dag, það er mér algjörlega hulin ráðgáta.

Aumingja Stubban mín er fárveik á Stykkishólmi, vona bara að henni batni sem allra allra fyrst.  Það er nú ekki skemmtilegt að vera komin á nýjan stað og byrja í nýrri sumarvinnu með því að vera veik.  En hún er ung og hraust...

Well erum búin að vera önnum kafin við sólbað og sundlaug í dag.  Erum að skríða inn vel bökuð og sjóðandi heit.  Nú er stærsta vandamál dagsins framundan:  Hvað eigum við að borða?  Eigum við elda eða eigum við kannski að fara út að borða?  úff þetta er SVO flókið líf. 

Svo annað kvöld dregur til tíðinda.  Flugfrænka litla ætlar að koma í heimsókn til okkar á meðan foreldrarnir ætla að skutla sér á tónleika.  Við gömlu höfum ekki passað lítið barn í ca 1000 ár svo þetta verður alveg ný reynsla fyrir okkur.

 


Fórum á ströndina,,,, eða þannig

Dagurinn búinn að vera nokkuð viðburðarríkur á okkar Florida vísu.  Við erum ekkert búin að prufa bekkina í dag og slúðrið fór algjörlega fram hjá frúnni. 

Við ákváðum frekar að leggja land undir fót og fara út á ströndina Atlantshafs megin.  Við ætluðum að fara til Melbourne, ekki þó þá áströlsku.  Well náðum í ferðafélagana og lögðum af stað.  Á leiðinni datt okkur í hug að droppa við á flóa markaði.  Algjörlega frábært,  herra ferðafélagi heillaðist algjörlega og keypti sér ýmislegt góss.  Við hin vorum penari í innkaupum og undirrituð meira að segja keypti sér ekki neitt.  Og áfram héldum við ferðinni á ströndina.  Ó mæ god,  þetta var svo langt að við nenntum ekki alla leið, snérum við og truttuðumst aftur heim.  Þessu strönd verður að bíða betri tíma.  Kannski skreppum við út að Mexico flóa, þangað er töluvert styttra,  erum þó pínu að spá.....  þið vitið Mexico og svín  -  svínaflensa...  nei bara djók.

Golfið gekk fínt 35 punktar og 102 högg.  Á morgun ætlum við að heimsækja vini okkar á Providence.  Ég vona að Steve verði á vakt.  Hann er ævintýralega líkur Walter Matteau alveg yndislegur karl.  Og þá er nú eins gott að vera með rétta hugafarið og hitta á helv.... kúlurnar.  Vatn, krókódilar og alles eru þarna.

Heyrið við tókum myndavélina með í strandaferðina en sökum strandleysis voru engar myndir teknar.  Kannski bætum við út því á morgun.

Tók af mér brunaumbúðirnar í kvöld, bara til að skipta um.  Engin sól núna í kvöld, svo ég ætla að leyfa hendinni greyinu aðeins að njóta frelsins.  Sárið grær flott en ég er pínu hrædd um að það verði gott ör á eftir.

Komment takk fyrir.....

Love ya all.  Sólar kveðja héðan frá yndislega Florida.LoL


Dagur eitt punktur

Ferðin hingað var LÖNG, en ákaflega þægileg.  Eins og venulega var nánast full vél en eitt var öðruvísi en áður.  Það sátu held ég 4 á Saga klass, í fyrra var þar alltaf kjaftfullt.

Við vorum auðvitað dálítið stressuð yfir Immigration gæunum,  þyrftum við enn einu sinni að vera tekin afsíðis útaf græna kortinu okkar.  En við vorum heppin og gæinn bauð okkur bara velkomin heim!! ákaflega ljúft.  Náðum í bílinn, sem svo sem gekk ekki andskotalaust Avis á Íslandi gerði einhverja gloriu og það sá ekki nokkur maður hérna vð við vorum búin að borga bílinn.  Hringi á Mánudaginn og græja það.  Well well flugfrændi og familia voru samferða okkur út og skutluðum við þeim heim í leiðinni.  Eigum eftir að sjá meira af þeim í þessu fríi.

En svo er auðvitað komið að alaðaltriðinu.  Getið hvað??  Jú golfið.  Frúin gerði sér lítið fyrir og fór á 98 höggum  húrra húrra húrra, tralalla lalla la  það eina slæma við þetta er að það er svo erfitt fyrir mig að fylgja þessu eftir.  En ég geri mitt besta.

Það er komin nautasteik í skápinn og bleika stöffið.  Ég er á leiðina út í sólina, held að það sé að nálgast 30 kallinn.  Ekki slæmt. 

Má ekki vera að þessu bloggi.  tjá  og dröslist nú hver sem betur getur að kommenta.....

sólarkveðja til ykkar allra


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband