Örfrí að verða búið.

Þetta oggulitla örfrí er nú alveg að verða búið.  Við erum búin að hafa það svo sannarlega eins og svín í sagi, notið hverrar mínútu og eftir að einhver kveikti á sólinni þá er brakandi blíða uppá hvern dag og við obboð kát.

Við erum búin að heimsækja fullt af fínum golfvöllum, golfum á hverjum degi og ég verð að segja að þótt árangurinn hafi verið svona upp og ofan þá skiptir það einhvern veginn svo litlu máli,  það eru svo mikil forréttindi að geta verið hér og farið í golf í nóvember.  

Eitthvað aðeins er búið að versla, en í þetta skiptið réttum við ekki við efnahag Bandaríkjanna, við erum búin að vera svo mikið pen í innkaupum.  Eigum samt einn dag til að bæta upp vesaldóminn í versun og viðskiptum.  

Stjörnunar eru auðvitað skoðaðar og ennþá er hún Angelína að pönkast í dásemdinni honum Brad, ég bara skil ekki hvað henni gengur til konunni.  Og vitið þið að það er allt að verða kreisí í höllinni,  Kata og Meghan bara geta ekki verið án þess að hnakkrífast og eymingja drottningin er alveg miður sín, eins og hún eigi ekki nóg með að tjónka við hann Andrés?  Ekki hef ég séð stafkrók um Travolta hjónin eða Barböru og hennar, svo ég bara geng út frá því að þar sé allt í lukkunar velstandi.

Það er kvöldið í kvöld eins og næstum öll hin kvöldin, sem ég þræla og púla.....  ég þurrka af borðinu, legg á borðið, kveiki á kertinu, tek tappann úr vínflöskunni og við skulum ekki gleyma að ég vel tónlistina.   Gamli eldar.

Það er Rib eye i kvöld svona í forbífarten.

Tjá óver and áat


Flugvéla Floridablog

Það var flugvélin sem ber nafnið Torfajökull sem dröslaði okkur yfir hafið i þetta skiptið.  Oft hef ég nú verið sneggri að skottast þessa leið, en þessi flugvél tók akkurat 8 klukkustundir í verkið.  Ég er nú ekki einlægur aðdáandi langra flugferða, en læt mig svo sannarlega hafa það, því ég veit hvað ég á i vændum.  Venjulega líða þessar flugferðir algjörlega lausar við allar uppákomur og annað en kannski pínu grátandi krakka í sætaröð 22 eða kannski annan grátandi grisling í sætaröð 16.  En í þetta skiptið dró svo sannarlega til tíðinda.  Ég var í mestu makindum að ná mér í smá fegrunarblund, þegar gamli hnippir í mig.  Haldiði ekki að aumingja konan í sætaröðinni fyrir framan okkur hafi fengið einhverskonar áfall.  Allar flugfreyjurnr komnar a staðinn og kona sem sat við hliðina á óheppnu konunni voru komnar í málið.  Ein flugfreyjan var með hjartastuðtæki meðferðis.  Ég verð að viðurkenna að mér stóð alls ekki á sama, aumingja konan og lika aumingja maðurinn hennar, sem var alveg miðður sín.  En konan rankaði við sér og bar sig bara vel.  Svo varð mér hugsað um hvað gerist bak við tjöldin og flugfrændi litli getur örugglega sagt mér.  Ég er nánast örugg um að flugsjórinn var látinn vita, en voru þeir / þau fram i flugstjórnarklefanum, farin að hugsa um hvar þau / þeir gætu lent með veiku konuna?  En allt svo fumlaust og flott hjá flugfreyjunum.

En hingað erum við komin, húsið æðislegt eins og vera ber en ó mæ god.....  það er búinn að vera fimbulkuldi alveg þangað til í dag.  Við gömlu erum búin að golfa í síðbuxum og síðerma, en í dag skín sólin og við komin ut við laug, búin að koma okkur vel fyrir.  

Af afrekum af golfvellinum er fátt að segja utan að gamli fékk örn á erfiðustu holu vallarins em við spiluðum í gær já og við skulum ekki gleyma fuglinum, sem hann fékk fyrr á hringnum.  Mín helstu afrek eru að hafa komist ógrátandi í gegnum hringina.  En það breytist allt á morgun, sól og blíða og mín í góðum gír, með flottar golfkúlur, ný tee og svei mér þá, get puntað mig í nýjan golfbol.  Hvað getur þá klikkað?   

Ég er búin að sjá að þessir 9 dagar eru algjör hungurlús  mér duga varla færri dagar en 21, en ju OK þetta er betra en ekki neitt.

Verð því að snua mér að sólbaðsiðkun og hana nu

Óver and át.

og þið munið ég ELSKA komment.

Held að það verði steik í kvöld.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband