SÓL SÓL SKÍN Á MIG

Ég fór í golfkennslu til hans Gregs í morgun.  Hann sannfærði mig um að ég væri ekki vonlaus golfari.  Bjartsýnismaður hann Greg.  Við gömlu skutluðumst svo einn golfhring í kjölfarið og viti menn það bara gekk svona ljómandi vel.  Hefði reyndar gengið betur ef öll þessi helv.... tré hefðu ekki verið að þvælast fyrir mér, mér hefur stundum dottið í hug að hafa með mér væna keðjusög svo ég geti snyrt skóginn að mínum golfþörfum  Devil.

Eftir golfhringinn tók svo við erfiður dagur á sólarbekknum.  Það er SVO  mikið sem ég þarf að lesa mér til um allar stjörnurnar hérna í Ammeríku, hver er með hverjum, hver klæðist hverju, hver þykir halló og hver þykir smart, hver er að hætta með hverjum og síðast en ekki síst hvaða krem hver stjarna notar.  Og ekki gleyma hvaða töflur á að gleypa til að verða tágrönn.  

Vorum svo dauðþreytt eftir mikið erfiðan dag að við fórum út að borða í kvöld.  Fórum bara hérna rétt hjá á Applebee's, ljómandi góður matur og hún Lisa sem þjónaði okkur var algjörlega frábær.  Og ekki spillti verðið fyrir tæplega $27 og það er innifalinn bjór með matnum.

Fann myndavélina í morgun, kannski fer ég að dúndra inn myndum....  hvur veit

Verið góð hvort við annað og lesið bloggið mitt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið vildi ég að ég veiktist af þessari golf-bakteriu. Margir félagar mínir sem náðu því lifa nú öðru og betra lífi í kör sinni.  Njótið

Klux

Klux (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband