Hvaða mánuður er núna?

Það mætti halda að það væri kominn desember.  Svei mér þá, það er jólasnjór hérna fyrir utan gluggann hjá mér.  Ég yrði sko ekki baun hissa þótt jólasveinn myndi eiga leið hér fyrir utan hjá mér.   En sólin skín í gegnum snjókomuna og sólin skín í hjartanu mínu,  er mar ekki orðin háfleygur?

Sko gat bloggað án þess að tuða út af "guttunum"  jú hú  Tounge


Það snjóar og snjóar og snjóar.........

Veturinn ætlar sko að koma snemma í ár.  Það hefði nú verið indælt að hann hefði nú ekki komið alveg strax.  Eða hvað?  Kannski er þetta plott hjá honum á efri hæðinni, hann kannski hugsaði sér með þessu að reyna að dreifa hugum okkar?  Mér finnst að hann hefði nú frekar átt að leggja krafta sína í að hlífa okkur greyunum við verðbréfaguttunum.  Úbs núna er ég strax búin að brjóta heitið síðan í morgun að blogga ekki meira um helv.... kreppuna.  En ég er hætt núna.  Ég lofa Halo   kannski....

Burt með kreppuna

Að minnsta kosti ætla ég ekki að blogga meira um kreppuna.  Það þýðir þó ekki að ég geri mér ekki grein fyrir því hvað er að gerast.  Ég er bara orðin niðurdregnari en efni standa til og ég trúi því innst í huga mínum að við eigum eftir að komast út úr þessu standandi í lappirnar.  Ég ætla líka að fækka fréttatímum sem ég hlusta eða horfi á, það er hreint mannskemmandi að innbyrða allt þetta.  Ég ætla líka að gauka að honum Gissuri Sigurðssyni, sem ég hef vaknað við í mörg ár þ.e. ég vakna alltaf við 7 fréttirnar á morgnanna.  Þessar síðustu vikur byrjar hann ALLTAF á því að tala um annaðhvort met hækkun á hlutabréfamörkuðum nú eða "blóðrauða" byrjun á þessum sömu mörkuðum.   Hættu þessu Gissur!!!  Ef ekki er hægt að vekja mig með öðrum fréttum þá stilli ég á aðra stöð góði minn.  Og núna er olíuverðið bara 5 eða 6 fréttin, sem var, þegar olíuverðið var í hæstu hæðum alltaf fyrsta frétt.  Blaða og fréttamenn bera svo mikla ábyrgð og ráða umræðunni að miklu leyti í harðri baráttu við Gróu á Leyti. 

Þetta finnst mér að minnsta kosti.


Eru þeir ekki með öllu viti?

"Stöndum þétt saman" eða eitthvað svoleiðis sagði biskupinn um daginn.  Þvílíkt bull hjá manninum.  Á meðan hann var að skrifa ræðuna var hann væntanlega í símanum við lögmanninn.  Skammastu þín kirkja !!!
mbl.is Kirkjan krefur ríkið um milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskur bauni

Þetta er ótrúleg saga.  Enginn búðareigandi eða nokkur dani hefur nokkurn tíma þekkt íslenskuna mína.  En ágætt að þeir eru að verða meðvitaðri um okkur.  ÉG ER HREYKIN AF ÞVÍ AÐ VERA ÍSLENDINGUR og ef einhver danskur töskubúðareigandi vill ekki íslenskan aur þá er hann bara heimskur.  Hann er örugglega búinn að njóta kaupgleði okkar í gegn um árin og ekki hunsað við okkar viðskiptum.
mbl.is Rekin úr búð í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskar fjölskyldur, saman nú, Bretana burt

Ég og mín litla fjölskylda erum arfavitlaus út í Breta.  Þótt meirhluti fjölskyldunnar sé af bresku bergi brotin þá stoppar það þau ekki í reiði sinni.  Við kvöldverðarborðið í gærkvöldi vorum við að upphugsa heimilisaðgerðir gegn Bretlandi.  Mótmæli Eggerts feldskera þykja mér líka ágæt, við eigum öll að láta heyra í okkur við þessa fauta.  Það er með ólíkindum að bandalagsþjóð og "vina" þjóð okkar hagi sér eins og bretar eru búnir að haga sér.  Ef þetta er "vina" þjóð okkar þá langar mig að eignast aðra vini.

 Ég vona svo sannarlega að Rússarnir láni okkur.  Ég vona svo sannarlega að við fáum aðstoð frá Norðmönnum.  Ég vona svo sannarlega að Belgar hjálpi okkur.  Ég vona svo sannarlega að Bretland fái makleg málagjöld og verði rúnir inn að skinninu.

Þetta finnst mér að minnsta kosti.


mbl.is Bretar kunna að skipa skiptastjóra yfir Landsbankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannlegri viðbrögð

Mér finnast viðbrögð Belganna töluvert mannlegri en viðbrögð þeirra félaga Brown og Darling.  Þeir ættu kannski að leita sér aðstoðar í mannlegum samskiptum.  Ef þeir hefðu ekki farið hamförum, er ég sannfærð um að Kaupþing væri enn í rekstri og við ekki í allri þessari óvissu.
mbl.is Belgar vilja tryggja rekstur Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna.

Nú er ég svoleiðis aldeilis hlessa.  Þessi frétt finnst mér ákaflega ágæt og gott að sjá að Sinfóníuhljómsveitir tekur þennan pól í hæðina.

Hvur veit nema ég skelli mér á tónkleika með hljómsveitinni í vetur, þó það hafi nú ekki verið á dagskránni.  Þó ekki nema bara til að sýna að þetta er viðhorf sem mér líkar.

Gott hjá þér Þröstur og co


mbl.is Afboðunin ákveðinn léttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jú jú, þetta er byrjunin.

En það verður að gera betur.  Stýrivextirnir eru ennþá ógnarháir og þá verður að lækka til að koma hjólunum af stað aftur.  Mig minnir að fyrir stuttu hafi seðlabanki Bandaríkjanna lækkað sína stýrivexti um 0,5%.  Aumingjaleg lækkun þykir ykkur ekki, en ekki aldeilis.  Ef íslenski seðlabankinn hefði lækkað um jafn hátt hlutfall þá værum við að sjá stýrivexti hérna uppá 7,75%.  Það litist mér betur á.
mbl.is Stýrivextir lækkaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gordon Brown staurblindur?

Var að lesa þessa frétt á visir.is.  Eftir lesturinn fannst mér þetta eiginlega engin frétt.  Er þá Gordon Brown ekki hæfur til að gegna starfi sínu, ef hann er blindur?  Ég held að hæfni mannsins til starfsins hafi ekkert með sjón hans að gera.  Ég held að hann hafi sannað það undanfarna viku að hann er langt frá því að vera starfi sínu vaxinn.  Ég þekki amk blinda konu sem er fullfær í nánast hverja vinnu sem er.  Myndi kannski ekki ráða hana sem bílstjóra en nánast flest annað.  Ekki satt Helena?

Kannski gott að það eru fréttir þessa dagana sem eru eiginlega engar fréttir, en þessi fannst mér nokkuð skrítin og eiginlega fjandsamleg í garð blindra og sjóndapra.  Það þarf nú ekki annað en að líta á Gordon greyið Brown að hann lítur ákaflega skringilega út og að afsaka útlitið í fjölmiðlum með því að hann sé svo sjóndapur, púff, hlusta ekki á þessa vitleysu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband