7.11.2008 | 13:14
Stjórnin mín og stjórnin þín
Mér prívat og persónulega finnst að Gunnar Páll eigi að sjá sóma sinn í að hætta strax sem formaður VR og hætta alfarið afskipum af því félagi. Fyrir nokkru hefði ég haft allt aðra skoðun, en störf hans í bankaráði Kaupþings hafa rúið hann mínu trausti algjörlega. Ef ég verð atvinnulaus, þá missi ég réttindi í VR mjög fljótlega þrátt fyrir að hafa greitt skilvíslega í félagið í hartnær 30 ár. Mín réttindi eru þó engan vegin í líkingu við það sem Gunnar Páll samþykkti að færa "lykilstarfsmönnum" Kaupþings. Við skulum ekki heldur gleyma að Gunnar Páll sat í bankaráðinu fyrir Lífeyrissjóð Verslunarmanna og þar ætti hann líka að kveðja fyrir fullt og allt.
Þetta finnst mér að minnsta kosti.
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ.
![]() |
Vilja stjórn VR burt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.11.2008 | 11:30
Frábært
Einvhern veginn þykja mér orð Eddu Rósar ekki merkileg í dag. Ég hlustaði á hana með virðingu hérna áður fyrr, þá þótti henni bankarnir allir hinu bestu og hún spáði og spáði. Hún hefur ekki reynst góð spákona þykir mér, frekar en allir "sérfræðingarnir" sem spáðu og spáðu. Ég hef ekki hugmynd um hvað er hægt að gera enda geri ég mig ekki út fyrir að vera sérfræðingur. En ég veit að við VERÐUM að koma fyrirtækjum til aðstoðar, til að fá hjól atvinnulífsins í gang. Við VERÐUM að þagga niður í Seðlabankanum, önnur eins hugvekja eins og kom frá þeim í gang, það er eitthvað sem við þurfum ekki. Ég er alls ekki að segja með þessu að við eigum að vera með einhvern fagurgala um ástandið nei og nei, en við þurfum að sjá von í framtíðinni. Við VERÐUM að koma fasteignamarkaðnum í gang aftur, þar eru fjöregg fólksins í landinu. Hvernig við gerum það, veit ég ekki, frekar ég ég veit ekki hvernig bönkunum tókst að koma okkur í þessa helv..... súpu'
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ
![]() |
Koma krónulufsunni" í gang á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2008 | 18:20
Akkurat.
Þetta hélt ég nefnilega alltaf. Ég hef alltaf haldið að ef ég á að bera ábyrgð á einhverjum skuldbindingum þá þarf ég að skrifa undir eitthvað því til samþykktar. Ég hef aldrei skrifað undir neitt þar sem ég ábyrgist Ice Save reikninga Landsbankans og eru þær skuldir því mér algjörlega óviðkomandi.
Þar með er minni kreppu lokið. Ég og þið hinir almennu borgarar þessa lands, við skuldum breskum sparifjáreigendum ekki baun, við skrifuðum aldrei aldrei aldrei undir sjálfskuldarábyrgð.
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ.
![]() |
Frumvarp um ábyrgðarmenn lagt fyrir Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2008 | 13:02
Æi greyið!!
Ekkert má nú karl greyið. Má hann ekki einu sinni eiga aumt fótboltafélag? Hann verður nú að hafa eitthvað til að skemmta sér við, núna þegar hann getur ekki lengur skemmt sér við að koma mér og ykkur í djúpt skuldafen og mestu milliríkjadeilu sem um getur.
Þeir hafa svo sannarlega verið duglegir, feðga parið á landinu okkar fagra, Björgólfur og Björgólfur og líka Jóhannes og Jón Ásgeir.
Samt erum við öll að agnúast út í þá......
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ
![]() |
Björgólfur íhugar að selja West Ham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.11.2008 | 10:54
Ja hérna
Er ökuleyfissvipting ekki refsing? Hvað í ósköpunum er það þá? Og ef það er ekki refsing, til hvers í ósköpunum er þá ökuleyfissvipting yfir höfuð notuð við umferðarlagabrot?
Ég veit að minnsta kosti á mínu eigin skinni, að ef ég missti bílprófið mitt þá væri ég í ljótum málum. Það væri hræðileg refsing fyrir mig, eiginlega verri en ef mér væri stungið í grjótið.
![]() |
Sviptur ökurétti saklaus en fær ekki bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.11.2008 | 10:39
Góður strákur Jón Ásgeir
Mér detta í hug nokkur nöfn sem Jón Ásgeir kemur til með að selja hluti í Nýrri Sýn hf.
- Ingibjörg Pálmadóttir
- Tryggvi Jónsson
- Jóhannes Jónsson
- ónefndir stjórnarmenn í Baugi
og fleiri fjölskyldumeðlimir og vildarvinir.
Dásamlegt allt saman. Jón Ásgeir á auðvitað nóg af seðlum. Tók hann ekki vel út úr Glitni fyrir hrunið? Ég bara spyr.
![]() |
Tilbúinn til að fara niður fyrir 40% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2008 | 10:10
Er hætt við fyrri yfirlýsingu.
Er maður ekki bara orðin eins og sá sem einhverju ræður.
Um daginn ætlaði ég að hætta að blogga um kreppuna. Er hætt við það. Ætla núna að blogga um hvað það sem mér dettur í hug. En ég ætla ekki að draga úr mér allan mátt. Ég ætla að nýta reiðina mína í blogg. Það er ekki nokkur hætta á að ég verði dregin til ábyrgðar er það nokkuð? Atburðir síðustu vikna kenna mér það að minnsta kosti.
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.11.2008 | 09:39
Áfram Bretar!!!
Er þetta ekki yndislegt? Bretar þessi líka fína vinaþjóð okkar. Ég er nú samt glöð að þeir ætla að koma og verja okkur í desember!! Hjúkket, mér líður miklu betur að vita af því. Þeir ætla líka að halda verndarheldi yfir okkur og sýna okkur einstakt vinarþel hjá IMF.
Nei í alvöru. Er ekki komið nóg af Bretum? Ég hef ekki hugsað mér að mótmæla neinu opinberlega, ég ætla ekki að tronta á Austurvöll á laugardögum, en ef einhver með viti skipuleggur mótmæli vegna Breta dátanna, sem ætla svo vel að vernda okkur í desember, þá kem ég. Hringið bara í mig og ég skal vera með í skipulagningu. Ég hef ekki baun við Breta að gera. Ég vil ekki Breta. Eins og ég hef áður sagt, ef þetta eru vinir, þá vil ég ekki eiga vini...
![]() |
Uggandi um afgreiðslu umsóknar hjá IMF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2008 | 09:26
Úbs, en leiðinlegt......
Þetta er ein sagan enn um hvað bankarnir eru eiginlega alveg í steik. Hvernig er hægt að "týna" peningum fólks? Bankamennirnir "týndu" ekki samþykktinni sinni, þegar verið var að sleppa þeim við persónulega ábyrgð. Nei ó nei, þá týndist ekki neitt. Og ennþá eru þessir sömu menn að stjórna bönkunum. Ég skil ekki baun hvað er að fólki. Ég hata að segja það, en hann bróðir minn hefur í mörg ár talað um spillingu á Íslandi og bananalýðveldi. Ég hef alltaf sussað á hann og talið hann vera tuðara, en hvað er að koma í ljós? Útvaldir bankamenn léku sér að peningunum okkar, settu mig og okkur öll í persónulegar ábyrgðir fyrir sínu sukki og "útrás". Búll sjitt, afsakið orðbragðið. Svo kemur Björgólfur Thor í sjónvarpinu og vælir eins og sprunginn grís, hann gerði allt til að koma í veg fyrir fall bankanna en ríkisstjórnin vildi ekki gera neitt. Skömm til þín Björgólfur. Hvar er ábyrgð eigenda bankanna? Kjölfestufjárfestar mæ ass, afsakið aftur, takið kjölfestuábyrgð ormarnir ykkar og takið ábyrgð, ekki láta hana falla á mig, takk fyrir.
Vona svo sannarlega að einhver dugur verði í ráðamönnum og allt þetta sukk verði rannsakað og menn dregnir til ábyrgðar. Heyra svo í mönnum í sjónvarpinu hmhmhm, engin lög hafa verið brotin bla bla bla. Það hafa sko verið brotin siðferðisleg lög. Ég veit að minnsta kosti að ef ég haga mér eins og þessir menn í mínum rekstri, þá verð ég sko látin borga alveg fram í rauðan dauðann.
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ.
![]() |
Peningarnir fundust og týndust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.10.2008 | 17:28
Enga Breta takk fyrir.
Það væri algjörlega út í hött að fá Breta til að "vernda" okkur í desember. Mér þætti nær að fá einhvern til að vernda okkur frá Bretum. Ég skil ekki að þetta sé einu sinni spurning. Hvernig dettur nokkrum ráðamanni í hug sú fásinna að borga Bretum fyrir að leika sér hérna í lofthelginni okkar? Ég vildi frekar sjá sendiherrann okkar í London koma heim og að sá Breski hundskist heim í heiðardalinn. Þótt auðvitað sé ekki allt okkar ástand Bretum að kenna, þá hjálpuðu þeir ekki til, eiginlega reiddu þeir náðarhöggið. Ég segi aftur eins og ég sagði í einhverju bloggi áður. Ef Bretar eru vinir okkar, þá langar mig ekki að eiga vini.
![]() |
Horfið frá beiðni um loftrýmiseftirlit? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)