Er sumarið komið?

Ég svoleiðis vona það.  Við gömlu ætlum í golf í kvöld og það lítur vel út með veðriðSmile   Ég get sko sagt ykkur að við fórum í golf á laugardagsmorguninn.  Jamm og já, það byrjaði að rigna og það rigndi og það rigndi og svo rigndi aðeins meira.  Þegar við vorum svo loksins búin vorum við eins og hálfdrukknaðar rottur boí ó boí.  Vorum alvarlega að hugsa um að kaupa okkur miða aðra leiðina westur um haf.  Fannst eiginlega algjörlega klikkað að eiga heimili í hitabeltinu, hafa græna kortið og húka svo hér í kulda og trekki.  En dagurinn í dag er frábær.  Á svona dögum er bara ekki gaman að vinna inni.  Þessir fáu dagar á sumri eru svo æðislegir.

Áfram um ferðalög

Jú ég er einlægur aðdáandi ferðalaga.  Man fyrstu eftir fyrstu flugferðinni minni.  Það var þegar bróðir minn var að læra flug og leyfði lillunni að koma með sér.  Flugvélin var sú fallegasta sem ég hafði séð, eins hreyfils, blá og hvít.  Þarna hef ég kannski verið 5 eða 6 ára gömul.  Vá hvað var æðislega gaman.  Ég man líka þegar ég var 11 og fór með mömmu að heimsækja flugbróður minn til Luxembourgar.  Flugvélin var miklu miklu stærri, DC-8 frá Loftleiðum.  Þá var flogið 3svar á dag til Luxembourgar hvorki meira né minna.  Mamma varði löngum tíma fyrir ferðalagið að sauma á mig föt til ferðarinnar og þá ekki síst ferðafötin.  Þau voru sko flott, bleikar flauels stuttbuxur og sítt vesti.  Ég var sú fyrsta í mínum bekk að ferðast til útlanda.  Þá var ekkert talað um hvort væri þröngt eða ekki þröngt í vélinni þetta var tær luxus og upplifun.  Ég er nú svo skrítin að ennþá þykja mér ferðalög upplifun.  Fríin mín byrja í Leifsstöð, ég fæ alltaf skrítin fiðring í magann þegar ég kem þangað, jafnvel þótt ferðalögunum hafi fjölgað umtalsvert.  

Í gamla daga var spurt eftir ferðalagið hvað hefði verið í matinn og hvað flugvélin hafi heitið.  Það spyr enginn að þessu í dag, maturinn er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir og enginn hefur áhuga á hvort flugvélin heitir eitthvað.  Frekar er spurt hvað ég hafi þurft að borga fyrir ferðina.

Núna eru öll flugfélög að leita leiða til að fá fleiri aura í kassann.  Mér fannst eiginlega bráðfyndin hugmynd frá annað hvort EasyJet eða RyanAir.  Það á að fara að kosta að fara á klóið.  Það þarf reyndar ekki að borga til að komast inná dolluna, nei ó nei það þarf að borga til að komast út.  Ó mæ god, maður gleymir buddunni eða á ekki rétt klink og er þá bara pikkfastur á kamrinum og vonar bara að fari ekki fyrir manni eins og konunni sem sogaðist föst við klóið í flugvélinni og þurfti að dúsa þar í 5 tíma, en það var nú líka í Ameríku.  American Airlines ætla að rukka $15 fyrir hverja tösku sem maður tékkar inn hjá þeim,  ég ætla sko ekki að fljúga með þeim eftir verslunartúr westur til USA.

Þótt mér þyki ekkert sérstaklega gaman að sitja um borð í flugvél þá þykir mér flug alltaf mjög spennandi og frábær ferðamáti, maður getur ferðast heimsálfa á milli á aðeins dagsparti, frábært.  Ég ætla sko að nýta mér þennan luxus vel og mikið og vona bara að ég þurfi ekki að borga heil ósköp fyrir.  Ef ég þarf að borga minna, þá fer ég bara oftar þannig að flugfélagið fær alveg jafn mikið út úr mér, ferðasjúklingnum. 

Og svona í endann, afhverju þarf endilega að gefa manni að éta í flugvél?


FYRIRGEFÐU LINDA

 Fyrirgefðu Linda að ég skyldi styggja þig svona með þessu litla bloggi mínu.   Ég er nú reyndar svo grunnhyggin að mér datt bara ekki í hug að einhver kona úti í bæ færi að formæla mér og bölsótast. 

Ef hún getur ekki séð húmorinn í þessari frétt, þá er illa fyrir henni komið.  Ég sé alveg fyrir mér langar raðir af fólki að bíða eftir vigtun....  sleppa morgunmatnum fyrir flug og annað í þeim dúr.

En ég stend samt við það, hvað það er óþægilegt að sitja við hliðina á fólki sem tekur miklu meira en sætið sem því er úthlutað.  Ég ætla ekki að nota sama orð og þú, það er bara óþægilegt.

Það hefur ekkert með útrýmingu anorexiu, að taka fólk í sátt, eða að reyna að breyta fólki, það er bara óþægilegt.

Ef Lindu langar í umræður um gott líferni, hollt mataræði, eða hreyfingu til dæmis, þá gæti það orðið bara skemmtilegt.

Mér bara brá töluvert þegar kona sem þekkir mig ekki baun og ég þekki heldur ekki, blótar mér á netinu.  En svona eru víst bloggheimar eða hvað?


Borga eftir þyngd!!!

Ég hef nú oft hugsað um þetta.  Afhverju þarf ég ræfillinn sem er bara svona í kjörþyngd að borga sama verð fyrir flugmiðann minn og fitubollan sem er langt á annað hundrað kíló?  Og ef ég voga mér að hafa meira en 20 kg í töskunni minni, þá þarf ég að borga aukalega fyrir það þó ég og taskan slögum alls ekki uppí þyngdina á fitubollunni sem borgaði sama fyrir miðann sinn og ég.  Svo ég tali nú ekki um skelfinguna sem grípur mann, þegar maður trítlar um borð með sætisúmer 14A og í sæti 14B situr þungarvigtarfarþegi sem tekur hálft sætið mitt.  Það er bara ekki réttlátt, ég er búin að borga fyrir þetta pláss og ef þungarvigtarfarþeginn vill meira pláss en ég þá skal hann sko bara borga fyrir meira pláss.  Og hana nú

Þetta er nú bara það sem mér finnst og er búið að finnast lengi.


mbl.is Farmiðaverð eftir þyngd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er að spá

Ég er alltaf jafn hissa þegar ég flýg með Icelandair til Orlando.  Ekki misskilja mig.  Mér finnst Icelandair flott flugfélag og ég er ótrúlega stolt af þeim, við svona lítil og héðan sé rekið svona flott flugfélag.  En sko ég fer nú nokkuð oft til USA og þá oftast til Orlando.  Það er eiginlega alltaf basl að fá miða þangað nema með margra mánaða fyrirvara, nema maður splæsi í Saga Class, sem ég auðvitað tími ekki, þess vegna skil ég ekki afhverju þeir fljúga ekki oftar þangað.  Núna um þessar mundir er flogið tvisvar í viku.  Þegar ég kom heim í gærmorgun var vélin svo smekkfull að það hefði ekki verið hægt að troða flugu með í viðbót.  Af hverju fljúga þeir ekki oftar þangað??????  Jú á veturna er bætt við einni já ég segi og skrifa EINNI ferð í viðbót á viku.  Ég ætla til dæmis að vera í Florida um jólin og ég er fyrir löngu síðan búin að bóka ferðina fyrir alla fjölskylduna og ég veit um fólk sem ætlar að vera úti um næstu páska, sem eru bæ ðe vei í apríl 2009, og þau eru búin að bóka.....  Þetta er eitthvað skrítið.  Ég hef haft samband við þá hjá Icelandair útaf þessu og þeir segja bara bla bla bla, takk fyrir ábendinguna, við erum alltaf að bæta þjónustuna bla bla bla.  Smekkfullar flugvélar segja mér að það ætti að fljúga oftar, eftirspurnin er klárlega til staðar en framboðið ekki.

Komin heim

Íslandið heilsaði okkur frekar svakalega.  Jarðskjálftinn í dag var svakalegur, ég bara sat í vinnunni minni og allt í einu skalf allt og nötraði, ég næstum því stökk út, en sá svo að húsið myndi standa svo ég bara settist niður en verð að viðurkenna að ég skalf innan í mér.  Mér þykja jarðskjálftar SVO andstyggilegir.

Við semsagt komum heim í morgun, lentum stundvíslega 5:55 í Keflavík.  Fríið okkar var algjörlega frábært, nutum lífsins eins og við best kunnum, slökuðum rækilega á, golfuðum frá okkur allt vit, borðuðum góðan mat og drukkum ágætis rauðvín og ekki sakaði hvað bæði matur og vín eru skítbilleg í ammeríkunni.  Þeir fyrir Westan eru algjörlega að tapa sér yfir háu bensínverði, en þegar við segjum þeim hvað við þurfum að borga þá sljákkar nú heldur betur í þeim. 

Já má ekki gleyma einu.  Á þriðjudagsmorguninn þegar við vorum bara að golfa (eins og venjulega) heyrðum við þvílík ósköp af sírenuvæli.  Ég hugsaði með mér að þetta væri nú ljóti hávaðinn þetta gæti jafnvel truflað golfleikinn.  Á miðvikudagsmorguninn þegar við mættum á golfvöllinn var okkur sagt að það hefði verið framið BANKARÁN já há bankarán, bara 5 mínútur í burtu frá okkur.  Þetta var nú heilmikið hú ha, því sveitin okkar er svo róleg að hið hálfa væri miklu meira en nóg.  Nema hvað þeir löggugæjarnir girtu nálæg hverfi af svo enginn komst í burtu eða inní hverfin og þetta var aðal umræðuefnið á golfvellinum þennan morguninn.

Nú get ég strax farið að hlakka til 26. september, því þá fljúgum við aftur út og verðum í viku. 


Euro búar kunna ekki gott að meta og hana nú

Þau Regína Ósk og Friðrik Ómar stóðu sig eins og hetjur.  Við sátum hérna kl. 15:00 og horfðum á Eurovision  í góðum gír.  Mér fannst nú lítið til ansi marga laganna koma og gvöð minn góður þegar maðurinn með allar gömlu konurnar í brúðarkjólunum birtist.  Hvað er að þessu fólki?  En hann  fékk fullt af atkvæðum.  En tölum ekki meira um það.  Eurobúar bara aular og hana nú.

 Nú fer heldur að styttast í fríinu okkar.  Það er samt alltaf það sama, það er alltaf svo gott að koma heim úr vel heppnuðu fríi.  Þetta frí okkar hefur svo sannarlega verið vel heppnað.  Við erum búin að gera akkurat ekki baun, nema golfa.  Það er eini fasti punkturinn í tilverunni á hverjum degi.  Við komum aftur í september og getum strax farið að hlakka til.

Er jafnvel að hugsa um að fara aftur í manicur á morgun, svo ég verði nú drellfín um puttana þegar ég kem heim, vitið að fyrir $20 sem ég borgaði fyrir 10 dögum síðan er naglalakkið ennþá í góðum gír.  Ég hef nú bara aldrei kynnst öðru eins.  Vona samt að ég lendi ekki hjá smávaxna kínamanninum  með löngu neglurnar hann minnti mig pínu á seiðkarl. 

Er að drífa mig í vinnugallan þ.e. bikini, sólin, bekkurinn, laugin og bleika stöffið bíða mín nú fer hver að verða síðastur að njóta í þessari ferð.


Loksins áfram í Eurovision

Og við ekki heima.....  við sem erum svo eldheitir euro aðdáendur.  Sátum hérna í sófanum með fartölvuna í fanginu og sáum okkar fólk.  Djö...  stóðu þau sig vel.  Það hefði verið algjört frat hefðu þau ekki komist áfram.  Nú þýðir ekki að sitja með tölvuna í fanginu.  Þannig að við erum á leiðinni í Best Buy til að vita hvort þeir eiga ekki snúru svo við getum tengt tölvuna við sjónvarpið, það bara hlýtur að vera til.  Samt skrítið að fara að glápa á Eurovision kl. 15.00, en við missum ekki af því fyrir nokkurn pening.   Ég er bara að spá hvort fjarvera okkar frá Íslandinu hafi eitthvað með þetta að gera.

Lífið hérna í Floridanu er sko ekkert nema rjómablíða, við erum orðin svo slök að við þurfum að rifja upp á hverjum degi hvaða dagur er,  þá er maður sko orðin slakur.  Gamli allur að liðkast í hálsinum og þá er nú mikið sagt.  Við komum heim í næstu viku ef við getum munað hvenær miðvikudagurinn er....

Við erum búin að vera að svamla í sundlauginni í dag og njóta þess að gera akkurat ekki baun.  Jú nema við gömlu gengum smá í barndóm og fórum í boltaleik.  Svona erum við orðin í sólinni.  Í kvöld er svo á dagskránni að slafra í sig úrvals steik eins og gamli getur best framreitt og kannski skola niður með úrvals rauðvíni sem kostar slikk.  Er ekki lífið dásamlegt?

Áfram Ísland annað kvöld, við látum okkur amk ekki vanta fyrir framan skjáinn ó nei, við hvetjum okkar fólk til dáða. 

Hvernig væri nú að skrifa athugasemdir?  Það finnst mér SVO gaman


Ég fíla mig svo vel hérna

Mér finnast kanar svo yndislegir.  Amk þessir sem við kynnumst hérna í hverfinu okkar, úti í búð, á golfvöllunum og eiginlega bara hvert sem við förum.  Í gær fórum við að golfa (hvað annað?) á Providence.  Þar eru margir vinir okkar sem fluttu sig héðan frá Highlands Reserve.  Þegar við komum á Providence eru aldeilis fagnaðarfundir.  Fólkið þar fagnar okkur eins og við séum uppáhaldsvinir þeirra.  Í gær meira að segja leysti Marion okkur út með gjöfum og lét fylgja með hvað henni þætti vænt um að við skyldum koma og heimsækja þau.  Mér finnst þetta yndislegt.

Í dag ætla gamli og kærastinn að glápa á úrslitaleikinn í meistaradeildinni  en ég og stubban ætlum að leggja land undir fót og sjoppa pínu lítið.  Vitum reyndar ekki hvernig ástandið verður þegar við komum  heim þar sem gamli heldur með Chelsea og kærastinn heldur með Man U.  Það verður bara að koma í ljós.  Hvað sem gerist erum við búin að bóka okkur í golf kl. 7:40 í fyrramálið. 

Í gærkvöldi fórum við í Downtown Disney og röltum þar um í nokkurn tíma, fengum okkur að borða og nutum Disney í botn.  Það er ótrúlegt hvað Disney er stórkostlegt,  þarna var fullt fullt af fólki og fullt að gera.

Verð að hætta, meira að segja stubban er tilbúin, ég er að fara að sjoppa, má ekki vera að þessu meir.

Vona að sólin fari að skína heima á Íslandi því ég er að koma heim eftir bara vikuCrying


Og himnarnir opnudust

Loksins rigndi, og thad bara dalitid hressilega i morgun.

Audvitad thurfti ad byrja ad rigna a medan vid vorum ad spila golf, kannski ekki kjor adstaedur, thvi her hellirignir thegar rignir.

En golfhringurinn hja mer heppnadist algjorlega ljomandi.  Eg rauf 100 hogga murinn i annad skiptid a ferlinum.  For a 99 hoggum, mer finnst thad algjorlega aedislegt  Grin

Ma eiginlega ekki vera ad thvi ad blogga thad er nebbnilega haett ad rigna og solbekkurinn bidur minCool

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband