17.11.2008 | 14:50
......
Hélt í smá stund að ég væri að lesa um nýjan útrásarvíking. En eins og við vitum stunduðu þeir margir hverjir að selja sjálfum sér ýmsa hluti, fyrirtæki og þess háttar smáræði.
Vona bara að þjófurinn fái makleg málagjöld.
![]() |
Keypti eigin vél |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2008 | 14:48
Gott að hann er ánægður
Ég er ekki svo viss um að ég sé svo rosalega glöð með þetta. Hann talar um að Íslendingar, takið eftir Íslendingar ætli að axla ábyrgð. Ha áttu Íslendingar Landsbankann? Ég átti amk ekki baun í bankanum og hafði bara ekkert með IceSave að gera. En úr því að við áttum í stríði við alla Evrópu var nú varla annað hægt að gera en að semja við helv.... Ætlum við svo að fá að vera með þessum "vinum" okkar í ESB? Ég er ekki heldur viss um að ég sé að tapa mér í gleði yfir því.
Þetta finnst mér að minnsta kosti.
![]() |
Ánægður með samninginn við ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2008 | 22:48
Á hvaða tungumáli?
Ég vona að samkomulagið við ESB sé á tungumáli sem allir aðilar skilja þokkalega. Það nefnilega skolaðist eitthvað til samtöl manna á millum á enskri tungu hérna í byrjun alls hasarsins við Bretana. Vona amk að samkomulagið sé ekki á ensku, því hvorki breskir né íslenskir skilji það tungumál til hlýtar. Væri ekki bara nokkuð gott að samkomulagið væri á íslensku?
En vona að það sé gott að þetta mál sé til lykta leitt og við getum nú einhent okkur í að lögsækja andsk..... bretana fyrir að setja á okkur hryðjuverkalög.
Þetta finnst mér að minnsta kosti.
![]() |
Icesave-deilan leyst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2008 | 15:59
Jibbí, er það ekki annars?
Ég veit ekki hvað á að halda um þetta allt saman. Einn fræðingurinn segir að við VERÐUM að fá lánið frá IMF en sá næsti segir að það sé nánast glapræði að fá aurana. Hvernig í veröldinni á ég, venjuleg húsmóðir í Garðabænum að skilja upp eða niður í þessu.
Ég hef reyndar aldrei skilið baun í bala allar peningaumræðurnar síðustu ár, hvernig einhver gat keypt sér fyrirtæki, hlutabréf eða hvað annað, þrátt fyrir að eiga ekki krónu fyrir því. Og svo stuttu seinna seldi athafnamaðurinn svo sjálfum sér þessi stórkostulegu fyrri viðskipti, fyrir miklu meiri pening og aftur þegar hann keypti af sjálfum sér þá átti hann heldur ekki pening, en athafnamaðurinn sem seldi sjálfum sér stórgræddi á öllu saman. Er þetta ekki pínu ruglingslegt? En svona viðskipti finnst mér hafa verið ótrúlega oft í fréttunum undanfarin ár. Ég er bara vön að fá útborgað fyrir mína vinnu og geta eytt þvi sem ég afla. Hef reyndar tekið lán til að eignast húsnæði, en þá tók lánveitandinn auðvitað veð í húskofanum. Bankarnir hafa varla getað fengið traustar tryggingar frá athafnamanninum sem var að selja sjálfum sér aftur og aftur.
Svo lásum við um þetta fína athafnafólk í Séð og Heyrt aftur og aftur, sáum hvað var stórkostlega flott heima hjá þeim, hvað þau héldu fínar veislur og þar fram eftir götunni og við hin mændum á blaðsíðurnar í tærri auðmýkt yfir hvað athafnafólkið var flott. Svo við tölum nú varla um bílana sem þau brunuðu á, vá þvílíkar drossíur kostandi tugi milljóna. En er ekki að koma í ljós núna að margir skreyttu sig með stolnum fjörðum, bíllinn veðsettur langt upp yfir loftnet og engin innistæða fyrir innbúinu flotta eða yfirleitt neinu.
En þetta er auðvitað bara litlu athafnamennirnir. Þessir stóru stóru eru fyrir löngu síðan búnir að koma öllu sínu þægilega fyrir í litlum bönkum í Karabíska hafinu og hlæja að okkur ræflunum sem nú þurfum aldeilis að bögglast við að borga fyrir flottheitin sem við sáum aðeins á blaðsíðum Séð og Heyrt.
![]() |
Umsókn Íslands afgreidd á miðvikudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2008 | 19:16
Hvað gerist?
Því hefur verið slegið upp í blöðum að Ísland sé á leiðinni að verða gjaldþrta. Ég skil ekki hvað gerist þá. Verðum við ræflarnir seldir hæstbjóðandi úr landi? Verður boðið í sauðsvartan almúgann og þeir sem ekki er boðið í, verða þeir settir í gúanó? Ég bara spyr því ég hef ekki græna glóru. Ég veit bara að þegar fyritæki verður gjaldþrota þá stoppar starfsemi þess algjörlega. Hvernig er hægt að stoppa starfsemi þjóðar? Kemur þá einhver skiptastjóri hingað og tekur í taumana? Hver skipar þennan skiptastjóra? Verður okkur svo úthlutað til einhverrar annarrar þjóðar sem hugsanlega vill taka okkur að sér? Ég hef bara ekki græna glóru, en er mjög forvitin að fá svör.
![]() |
Gætum hæglega sleppt IMF-láni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2008 | 20:07
Gott hjá þér Ólafur
Ólafur Ragnar á mína virðingu eftir þennan hádegisverðarfund. Sé það fyrir mér þegar allir sendiherrarnir mæta á fundinn. Þau eru vön að fá gott í gogginn og svo einhverjar silkiumræður um eitthvað, sem ég auðvitað veit ekkert um. Í þetta skiptið fengu þau vonandi gott að borða og ég svo sannarlega vona að Ólafur Ragnar hafi látið í sér heyra. Norðmenn, Færeyingar og Pólverjar virðast vera þeir einu sem þora að rétta okkur hjálparhönd. Hvað um hina norrænu frændur okkar? Finnar þurfa meiri upplýsingar, hef ekkert heyrt um Dani og Svíar neita einhverri lánalínu,(skil þetta orðatiltæki ekki) sem þeir voru samt búnir að samþykkja áður.
Ég hef nú ekki allta verið ákaflega hrifin af Ólafi Ragnari en núna vona ég svo sannarlega að hann hafi látið þetta fólk heyra hug okkar Íslendinga allra.
Þetta finnst mér að minnsta kosti
![]() |
Forsetinn gagnrýndi nágrannaríki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2008 | 17:18
Obama flottur

![]() |
Obama bað Nancy Reagan afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.11.2008 | 17:15
Húrra fyrir Hannesi
Dásamleg þessi Sterling flétta. Pálmi Haraldsson og félagar eru búnir að selja sjálfum sér félagið svo oft að hið hálfa væri miklu meira en nóg. Og Hannes vinur okkar og bjargvættur kom þar auðvitað við sögu. En það er nú svo gott að Hannes er kominn heim, reyndar blankur að eigin sögn, og ætlar að hjálpa okkur að koma okkur á lappirnar.
![]() |
Lét flytja út af reikningum FL án heimildar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2008 | 16:53
Stórkostlegt :(
Þetta var akkurat sem þurfti! Er ekki allt í lagi með fólk. Að mótmæla er auðvitað hverjum sem er frjálst en ég er ekki sammála þessum aðgerðum. Og draga fána Bonus að húni alþingishússins. Það er augsýnilegt að þar hefur einhver, sem hefur ekki hugmynd um neitt, verið að verki. Að minnsta kosti gerir sá hinn sami sér ekki grein fyrir að þeir Bonus menn lágu ekki á liði sínu að koma okkur í þennan vanda sem við erum í núna. Og til að bíta höfuðið af skömminni fyrir þá félaga, þá situr góðvinur þeirra Tryggvi Jónsson í "ráðgjafa" stól í Landsbankanum og velur hvaða fyrirtæki fá að lifa og hver ekki. Hm hm hm, gæti þetta fyrirtæki verið gott fyrir Haga að yfirtaka eftir gjaldþrot? það virðist vera hans vinna þessa dagana.
Nei ég held að mótmælendur ættu að beita kröftum sínum frekar í að kynna sér málin áður en þeir haga sér svona fíflalega.
Þetta finnst mér að minnsta kosti
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ.
![]() |
Geir Jón: Lítið má út af bregða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2008 | 19:55
Æi aumingja öðlingurinn Björgólfur!!!
Er ekki að koma út bók um hvað Björgólfur eldri var beittur miklum rangindum varðandi gjaldþrot Hafskips? Ætli einhver kaupi þá bók? Ég held að væri ráð að bíða eftir framhaldinu, það verður miklu meira krassandi. Hvernig kom Björólfur öðlingur íslensku þjóðinni á kollinn? Hver beitti Björgólf öðling rangindum og tók af honum Landsbankann? Aumingja Björgólfur þetta er svo erfitt fyrir hann!!! Æi mér er svo slétt sama um Björgólf og hans líka. Hann er búinn að valsa hér um þjóðfélagið eins og nánast frelsarinn sjálfur, en því miður skilur hann eftir sig blóðuga slóð. Ekki misskilja mig samt, hann var ekki einn að verki, skólabróðir minn Sigurður Einarsson og ónefndir Bonus feðgar ásamt miklu fleiri undirsátum eiga mikinn heiður skilið fyrir framgöngu sína. Ekki satt?
Þetta finnst mér að minnsta kosti
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ
![]() |
Óskar eftir gjaldþrotaskiptum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)